Isuzu




D-Max
Endurhannaður pallbíll
Verð frá: 6.190.000 kr
Sjá verðlistaIsuzu D-Max er í þessari nýju gerð algjörlega endurhannaður frá grunni. Isuzu er einn öfluguasti framleiðandi heims í smíði endingargóðra flutningabíla. Isuzu D-Max býr svo sannarlega að þeirri reynslu því hann hefur reynst mjög vel við íslenskar aðstæður og verið eigendum sínum áreiðanlegur.
Bæklingur bílsins:
Drifbúnaður
Isuzu D-Max er með hefðbundið fjórhjóladrif og keyrir þar af leiðandi öllu jöfnu á afurhjólunum en tengir inn framhjólin með rafmagnsstýringu og takka í mælaborði. Hann er með millikassa og hágt og lágt drif til að nota þegar aka á við erfiðar aðstæður. Það er hægt að fá loftlæsingar bæði í fram (7,5“) og afturdrifið (8,8“) á Isuzu D-Max.
Þægilegur og öruggur
Staðalbúnaður, tengdur öryggi, í þeim bílum sem BL flytur til landsins, er með því mesta sem gerist í pallbílum af þessari gerð. Allir Isuzu D-Max bílarnir eru með ABS hemla, tvöfalda loftpúða, þriggja punkta öryggisbelti fyrir fimm, EBD hemlajöfnun, ljóskastara í framstuðar og fjölspegla halogen framljós. Það er ekki einungis öryggisbúnaðurinn sem er hugsað er fyrir heldur er Isuzu D-Max með loftkælingu (Air Condition), Hraðastillir (Cruise Control), Vökva og veltistýri, útvarp með geislaspilara og 6 hátölurum, rafdrifnar rúður og spegla, aksturstölvu, auka tengi 12V, samlæsingar á hurðum með fjarstýringu og stokk á milli framsætanna.
Aflmikil dísilvél og framúrskarandi dráttargeta
Það er enginn pallbíll í þessum flokki sem hefur jafn mikla dráttargetu og hæfni til að ráða við þungar byrgðar og Isuzu D-Max. Þú setur hann fyrir hestakerruna, bátinn eða tjaldvagninn og hann gerir það sem til er ætlast. Isuzu D-Max hefur 3000 kg dráttargetu sem er einsdæmi í þessum flokki bíla. Dísilvélin í Isuzu D-Max er þriggja lítra „Common Rail“ vél með millikæli og VGS tækni (Variable Geometry System) sem skilar allt að 13% betri eldsneytisnýtingu, auknu afli og töluvert minna hljóði en eldri gerð véla í D-Max. Þessi nýja vél er 163 hestöfl og allt að 360Nm við snúningsvægi frá 1800 snúningum á mínutu til 2800 snúninga á mínútu. Öflugur startari og vélahitun gerir kaldræsingu auðvelda.
Traustur og endingargóður
Isuzu D-Max er ekki bara traustur og endingargóður heldur er hann nú vel útbúinn og hlaðinn þægilegum nýjungum sem sóma sér vel í hvaða fjölskyldubíl sem er. Nægir þar að nefna þægilega 4 þrepa sjálfskiptingu, aflmikla þriggja lítra dísilvél og notalega innréttingu. Aðbúnaður fyrir farþega í aftursæti er einn sá þægilegasti í þessum flokki bíla.
Crew Cab :
Krómaðir hurðarhúnar
Aksturstölva
6 hátalarar
Útvarp og geislaspilari
3ja punkta belti í öllum sætum
16” álfelgur
Rafdrifnar rúður og útispeglar
EBD hemlajöfnun
Veltistýri
Kastarar í stuðara
Þokuljós
Hátt og lágt drif
Loftpúðar fyrir ökumann og framsætisfarþega
Vökvastýri
Halogen framljós
ABS hemlalæsivörn
Hraðastillir (Cruise Control)
12 volta raftengi
Samlitir stuðarar
Samlæsingar
Fjarlæsing
Mismunadrif
Höfuðpúðar í aftursæti
Loftkæling (Air Conditioning)
Drifhlutfall
-
Eldsneyti
Dísil
Hemlar framan/aftan
Diskar/tromlur
Farangursrými
-
Hámarkstog Nm/sn.m.
360/1800
Gírhlutföll 3. gírs
1.000
Fjöldi strokka
4
Eigin þyngd
1920 kg
Mesta þyngd tengivagns (án hemla)
750 kg
Hámarksafl hö/sn.m.
163/3600
Beygjuradíus
12,4 m
Co2 í útblæstri gr/km
237
Gírhlutföll 4. gírs
0.705
Ventlakerfi
16 ventla
Eldsneytistankur
76 lítrar
Gírhlutföll 2. gírs
1.532
Slagrými
2999 cc
Gírskipting
4ra þrepa sjálfsk.
Fjöðrun framan
Double Wishbone
Eyðsla (lítrar/100 km samkv. EB-staðli)
9,0
Gírhlutföll 1. gírs
2.804
Heildarþyngd
2950 kg
Eldsneytiskerfi
Common Rail
Hröðun 0-100 km/klst.
-
Drifrás
Fjórhjóladrif
Fjöðrun aftan
Heil hásing með blaðfjöðrun
Gírhlutföll bakkgírs
2.394
Mesta þyngd tengivagns (m. hemlum)
3000 kg



