Saga B&L
Fyrirtækið var stofnað árið 1954 en á þeim árum áttu Íslendingar mikil viðskipti við Breta og fór t.d. um 60% alls íslensks fiskútflutnings til Bretlands. Árið 1951 færðu Íslendingar fiskiveiðilögsöguna úr þremur út í fjórar sjómílur. Englendingar brugðust við með því að setja hafnarbann á íslensk skip og því varð að leita til Sovétríkjanna um viðskipti. Sovétmenn settu það skilyrði fyrir viðskiptasamningum að Íslendingar keyptu af þeim ýmsa iðnaðarvöru, þ.á.m. bíla. Til að annast þennan bílainnflutning sameinuðust bílainnflytjendur og stofnað var fyrirtækið Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf. Fyrstu bílarnir sem nýja fyrirtækið flutti inn frá Sovétríkjunum voru 100 bílar af Pobedu-gerð. Í kjölfarið komu svo Moskvíts, Rússajeppinn og Volga. Tímamót urðu í sögu B&L þegar Ladan kom til sögunnar. Hagstætt verð á Lödu gerði fleirum kleift að eignast nýjan bíl á þessum árum.
Vinsældir Lada bifreiðanna voru miklar
Allt fram til ársins 1992 seldi fyrirtækið aðallega Lada bifreiðar og jukust vinsældir þeirra jafnt og þétt. Sem dæmi má nefna að á árinu 1986 seldust um 2.500 bílar og árið þar á eftir um 2.800 bílar. Jafngilti þetta því að um 1% þjóðarinnar hefði keypt Lada bifreið á þessum árum . Árið 1985 fengu B&L umboðið fyrir Arctic Cat snjósleða frá Bandaríkjunum en þeir höfðu þá þegar unnið sér inn gott orð á markaðnum.
Hyundai kemur til skjalanna
Árið 1992 kynnti B&L nýja tegund af bifreiðum frá Hyundai í Suður Kóreu. Hyundai bílarnir féllu vel að því markmiði fyrirtækisins að allir ættu að hafa efni á að eignast nýjan bíl og tóku þeir markaðinn með trompi. Hyundai rauk beint í 4. sætið yfir mest seldu bíla ársins og var markaðshlutdeild þeirra heil 8%.
Renault, Land Rover og BMW bætast í hópinn
Það var skammt stórra högga á milli í rekstri fyrirtækisins og árið 1995 fékk B&L tvö ný bifreiðaumboð: Renault frá Frakklandi og BMW frá Þýskalandi. Ári síðar bættist Land Rover umboðið í hópinn. Sala á Land Rover jeppum hafði þá legið niðri í sjö til átta ár en vinsældir þeirra hafa aldrei verið jafn miklar og nú.
B&L sprengir utan af sér húsnæðið
Lengst af var B&L til húsa að Suðurlandsbraut 14 og í Ármúla 13. Eftir því sem umboðum fjölgaði og starfsemin óx varð þörf á nýju hentugra húsnæði. 1.maí 1998 var fyrsta skóflustungan tekin á Grjóthálsi 1 að nýbyggingu félagsins. Innan árs hafði risið 7500 m2 glæsilegt húsnæði á 14.000 m2 lóð, sem hýsir allar söludeildir nýrra bíla, fjármáladeild, þjónustudeild, markaðsdeild, B&L verslunina, Bílaleigu B&L og Bílaland, söludeild notaðra bíla. Réttingarverkstæði B&L er ásamt standsetningu og dekkjaþjónustabifreiða aftur á móti til húsa að Viðarhöfða 1.
B&L flytur aðalstöðvar sínar að Sævarhöfða 2
Í apríl 2009 flutti B&L að Sævarhöfða 2 þar sem bifreiðaumboðið Ingvar Helgason hf. er einnig til húsa. Þessi ráðstöfun var hluti af aðgerðum fyrirtækisins til að bregðast við efnahagsástandinu og hruni í bílasölu. Sala og þjónusta við Renault bifreiðar ásamt atvinnubílaverkstæði er til húsa að Fosshálsi 1 en þar er einnig Bílaland með aðstöðu sem og á Sævarhöfðanum. Réttinga- og málningarverkstæðið er eins og áður til húsa að Viðarhöfða 1.
|