Við leggjum metnað okkar í að sinna þjónustu við bíla í sem víðustu samhengi. Að sama skapi skiptum við þjónustunni uppí deildir til að sem mest sérhæfing náist ásamt því sem við teljum okkur ná betur að viðhalda fagþekkingunni.
Okkar meginmarkmið er traust og persónuleg þjónusta þar sem hvergi er brugðið útaf í vandvirkni og öryggi. Við vinnum eftir viðurkenndum gæðastöðlum og erum sífellt að aga okkur, viðskiptavinum til heilla.
Við erum opin fyrir öllum ábendingum sem geta gert okkur að betra fyrirtæki.
Ég bið ykkur kæru viðskiptavinir að hrósa starfsfólkinu þegar við á og jafnframt að bera fram ábendingar um það sem betur má fara, af yfirvegun og á málefnalegan hátt. Þannig náum við árangri.
Kær kveðja
Þjónustusvið B&L