| Neyðarþjónusta B&L
Samband gefið frá aðalnúmeri okkar, 575 1200, eftir lokun skiptiborðs
Markmið:
Með neyðarþjónustu erum við að koma til móts við þá viðskiptavini okkar sem þurfa nauðsynlega á þjónustu okkar að halda utan opnunartíma B&L.
Neyðarþjónustan getur aðeins greitt úr þeim málum sem eru tiltölulega auðleyst.
Flóknari eða tímafrekari þjónusta getur einungis farið fram á hefðbundnum
opnunartímum.
Tilgangur:
Þau okkar sem vinna á laugardögum eða um helgar, hafa haft takmörkuð úrræði ef viðskiptavinir hringja vegna bilaðs bíls og geta því framvegis beint þeim til
neyðarþjónustunnar. Með góðri þjónustu, styrkjum við stöðu okkar á markaðnum.
Ánægður viðskiptavinur er ein besta fjárfestingin sem við eigum völ á.
Með þessari mikilvægu þjónustu viljum við:
Greina vandamálið og leysa það í gegnum símann, ef kostur er.
Gefa viðskiptavinum kost á einfaldri varahluta- og viðgerðaþjónustu eftir lokun.
Vera til staðar fyrir viðskiptavininn, einnig utan opnunartíma.
Bóka tíma hjá þjónustudeild, ef þarf og veita viðskiptavinum aðgang að öðrum úrræðum, t.d. Bílaleigu B&L.
Framkvæmd:
Öll ráðgjöf og bilanagreining símleiðis er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Hvert útkall kostar kr. 8.000 ef kalla þarf út mann vegna t.d. viðgerðar,
varahlutaafgreiðslu og/eða útláns á bílaleigubíl (nema bilun í bíl í ábyrgð sé að ræða).
Greiða þarf fyrir viðgerðarþjónustu á tímagrunni, þ.e. fyrir hverja unna vinnustund.
Ef um bíl í ábyrgð er að ræða, gilda sömu reglur og venjulega: Neyðarþjónustan er
þeim bíleigendum að kostnaðarlausu, að uppfylltum ábyrgðarskilmálum, þ.e. að
bilunin verði rakin til framleiðanda og að bíllinn hafi verið þjónustuskoðaður skv.
þjónustubók. Jafnframt verður viðkomandi bíll að hafa verið fluttur inn af B&L. Neyðarþjónustan nær til allra bíla sem B&L hefur flutt inn, nema um vörubíla, rútur
og strætisvagna sé að ræða.
|