aðstoðað þig?
Vottaðir viðhaldsaðili bílarafhlaða
Bifvélavirkjar BL hafa lokið vottunarprófi í þjónustu og viðhaldi á einstökum einingum í bílarafhlöðum og er verkstæði okkar með sérstak afmarkað rými sem er útbúið öllum nauðsynlegum og sérhæfðum viðgerðar- og greiningarbúnað sem þar til þess að annast viðhald á rafhlöðum.
Hleðsla heima við
Hefðbundna aðferðin við að hlaða rafbíla er að nota vottaða hleðslusnúra frá framleiðendum. Þessum snúrum er ætlað að tengjast við venjulegan tengil (innstungu) en einkum til hleðslu til skemmri tíma.
Sérfræðingar BL mæla eindregið með því að eigendur rafbíla láti setja upp hleðslustöð til heimanotkunar við hleðslu rafbíla. Jafnframt ráðleggur BL eigendum rafbíla að fela löggiltum rafvirkja að fara yfir uppsetningu tengils sem nota á til hleðslunnar auk þess sem hann gengur úr skugga um að engu sé ábótavant í flæðigetu raflagnarinnar milli tengilsins og viðkomandi öryggis í rafmagnstöflu hússins.
Neyðar þjónusta
Ef bilun verður í bíl sem er í ábyrgð og kalla þarf eftir neyðarþjónustu er neyðarþjónustan bíleiganda að kostnaðarlausu að uppfylltum skilyrðum ábyrgðarinnar. Neyðarþjónustu utan hefðbundins opnunatíma er sinnt af starfsmönnum á bakvakt frá varahlutaverslun og verkstæði eftir því sem við á.
Hvað getum við
gert fyrir þig?
gert fyrir þig?