Rafbílastyrkur Orkusjóðs
Nýtt stuðningskerfi fyrir kaup á rafbílum tók gildi 1. janúar 2024. Nú er hægt að sækja um styrk til rafbílakaupa hjá Loftslags- og orkusjóði í gegnum Ísland.is. Umsækjendur fara inn á Ísland.is með rafrænum skilríkjum og ganga frá umsóknum með auðveldum hætti. Styrkur greiðist á bankareikning kaupanda bifreiðarinnar.
Styrkhæfi ökutækja
Hvernig ökutæki?
- Rafmagnsbílar sem eru 100% knúnir rafmagni.
- Vetnisbílar með efnarafal.
Hver er upphæðin?
- Nýskráður fólksbíll (M1) að hámarki 900.000 kr.
- Nýskráður sendibíll (N1) að hámarki 500.000 kr.
Hvaða flokkar ökutækja?
- Fólksbílar sem taka að hámarki 8 farþega (flokkur M1)
- Sendibílar að hámarki 3,5 tonn að þyngd (flokkur N1)
Önnur skilyrði
- Nýskráðir á Íslandi eftir 1. janúar 2024
- Kosta minna en 10 milljónir
Lýsingar og upplýsingar hér að ofan eru teknar úr opinberum leiðbeiningum Umhverfis- og orkustofnunnar. Upprunalegar upplýsingar má finna hér