Saga BL
BL hefur verið starfandi síðan 1954...
1954
B&L
Í kjölfar viðskiptasamnings við Sovétríkin var fyrirtækið Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf. (B&L) stofnað af Guðmundi Gíslasyni. Fyrstu bílarnir sem hið nýja fyrirtæki flutti inn frá Sovétríkjunum voru 100 stykki af Pobedu. Í kjölfarið komu svo Moskvíts, Rússajeppinn og Volga.
1956
Ingvar Helgason hf.
Fyrirtækið Ingvar Helgason hf. var stofnað af hjónunum Ingvari Helgasyni og Sigríði Guðmundsdóttur árið 1956 og markast stofnun fyrirtækisins af ráðningu fyrsta launaða starfsmannsins. Fyrirtækið, sem fyrstu árin gekk undir nafninu Bjarkey hf., stundaði innflutning og heildsölu á leikföngum og gjafavöru.
1962
Ingvar Helgason hf.
Ingvar Helgason hf. hóf innflutning á bifreiðum frá AusturÞýskalandi árið 1962. Í upphafi var aðeins um að ræða Trabant en seinna meir var einnig fluttur inn Wartburg frá Austur-Þýskalandi.
1964
B&L
Fagnar 10 ára afmæli og flytur á Suðurlandsbraut 14
1971
Ingvar Helgason hf.
Ingvar Helgason hf. hóf innflutning á Nissan bifreiðum árið 1971, sem söluaðili danska Nissan umboðsins (þá Datsun).
1974
B&L
Ladan kemur til sögunnar hjá B&L. Hagstætt verð á þessum bílum gerði almenningi mögulegt að eignast nýjan bíl á þessum árum og var hluti vinsælda þeirra. Allt fram til ársins 1992 seldi B&L aðallega Ladabifreiðar og jukust vinsældir þeirra jafnt og þétt.
1976
Ingvar Helgason hf.
Árið 1976 hóf Ingvar Helgason ehf. samstarf við Fuji Heavy Induesties Ltd., framleiðanda Subaru bifreiða og voru fyrstu bílarnir fluttir inn síðla sama ár. Subaru bílarnir urðu fljótt vinsælir á Íslandi enda fyrstu fjórhjóladrifnu fólksbílarnir sem buðust á markaðnum
1980
Ingvar Helgason hf.
Er hér var komið sögu var Ingvar Helgason hf. löngu búið að sprengja utan af sér húsnæðið að Vonarlandi við Sogaveg og keypt var húsnæði Efnablöndunnar að Rauðagerði 27 og reistur sýningarsalur fyrir nýja bíla neðar á sömu lóð.
1982
Ingvar Helgason hf.
Ingvar Helgason hf. gerist sjálfstæður umboðsaðili Nissan á Íslandi og innflutningur á Nissan bílum hefst beint frá Japan.
1985
B&L
Þetta ári fékk B&L einkasöluumboð fyrir Arctic Cat vélsleða frá Bandaríkjunum en þeir höfðu þá þegar getið sér inn gott orð fyrir nýjungar og velgengni á markaði.
1986
B&L
Lada verður söluhæsti bíll landsins. Árið 1986 voru gjöld lækkuð af nýjum bílum og bílasala tekur verulegan kipp, sem dæmi má nefna að á árinu seldust um 2.500 bílar og árið eftir um 2.800 bílar. Jafngilti þetta því að um 1% þjóðarinnar hefði keypt Lada bifreið á þessum árum
1988
B&L
Opnar nýjan sýningarsal fyrir Lada í Ármúla
Ingvar Helgason hf.
Innflutningur á Trabant og Wartburg hættir. Hafist handa við byggingu Sævarhöfða
1989
Ingvar Helgason hf.
Ingvar Helgason hf. flytur starfsemi sína að Sævarhöfða 2 í apríl 1989, réttu ári eftir að framkvæmdir við bygginguna hófust.
1992
B&L
B&L kynnir til sögunnar nýja tegund af bifreiðum frá Hyundai í Suður Kóreu. Hyundai bílarnir féllu vel að því markmiði fyrirtækisins að allir ættu að geta eignast nýjan bíl og tóku markaðinn með trompi. Þeir ruku beint upp í 4. sætið yfir mest seldu bíla ársins og var markaðshlutdeild þeirra um 8%.
1993
Ingvar Helgason hf.
Í ársbyrjun 1993 festi Ingvar Helgason hf. kaup á rekstri bifreiða- og véladeildar Jötuns hf. Í kringum bifreiðainnflutninginn varstofnað nýtt fyrirtæki, Bílheimar ehf., sem annaðist innflutning og sölu á GM – Opel og Isuzu bifreiðum.
1995
B&L
B&L kemst að samkomulagi við Bílaumboðið hf. að taka við umboði BMW og Renault. Með í samningunum fylgir umboð fyrir Rover sem BMW eignaðist meirihluta í árið 1994
Ingvar Helgason hf.
Á árinu hafa miklar hræringar verið í bílgreininni. Globus hf. ákveður að hætta sölu bíla. þar af leiðandi bætist Saab í flóru þeirra tegunda sem Bílheimar ehf. flutti inn
1996
B&L
Söluumboð fyrir Land Rover bætist í hópinn hjá B&L. Sala á Land Rover jeppum hafði þá legið niðri í 7-8 ár.
1998
B&L
Lengst af var B&L til húsa að Suðurlandsbraut 14 og í Ármúla 13. En eftir því sem umboðum fjölgaði þrengdist að rekstrinum í þessum húsakosti og 1. maí 1998 var fyrsta skóflustungan tekin af nýjum höfuðstöðvum B&L að Grjóthálsi 1.
1998
B&L
2. október, á innan við ári flytur B&L inn í ný reist 7500 m2 glæsilegt húsnæði á 14.000 m2 lóð. Nýja húsið hýsti söludeildir nýrra bíla, fjármáladeild, þjónustudeild, markaðsdeild, verslun og Bílaland sem er söldudeild notaðra bíla. Sprautuverkstæði og standsetning fyrir nýja bíla var til húsa að Viðarhöfða 4.
2001
Ingvar Helgason hf.
Markaðshlutdeild Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima ehf. á fólksbílamarkaðnum nær sögulegu hámarki eða 26,5%
2004
Ingvar Helgason hf.
Fjölskylda Ingvars Helgasonar selur hópi fjárfesta allt hlutafé í fyrirtækjunum tveimur, Ingvari Helgasyni hf. og Bílheimum ehf. Véladeild fyrirtækisins rennur inn í fyrirtækið Jötunn-vélar ehf. á Selfossi og við það eignast Ingvar Helgason hf. hlut í félaginu. Rekstri félagsins er breytt í einkahlutafélag og fyrirtækin tvö sameinuð undir nafninu Ingvar Helgason ehf.
2005
Ingvar Helgason hf.
Ráðist var í viðamiklar breytingar á húsnæði Ingvars Helgasonar ehf. við Sævarhöfða. Sýningarsalir sameinaðir, stækkaðir og þeim gjörbreytt. Voru nýju salarkynnin formlega opnuð í júlí 2005 og í framhaldinu var ráðist í enn frekari breytingar á húsnæðinu, m.a. að þrefalda stærð bifreiðaverkstæðisins auk ýmissa annarra breytinga og lagfæringa
2007
Ingvar Helgason hf.
Verkstæði Ingvars Helgasonar ehf. tilbúið eftir viðamiklar breytingar og er nú eitt það glæsilegasta á landinu. Nú eru allar bílgerðir Ingvars Helgasonar ehf. þjónustaðar á Sævarhöfðanum. Fjölskylda Guðmundar Gíslasonar selur B&L ehf. til eigenda Ingvars Helgasonar ehf.
2009
Ingvars Helgason og B&L
B&L ehf. flytur alla starfsemi sína frá Grjóthálsi í húsnæði Ingvars Helgasonar að Sævarhöfða 2. Þetta var ein af mörgum hagræðingaraðgerðum sem farið var í vegna kreppunnar sem kom mjög harkalega niður á íslenska bílamarkaðinum. Arctic Cat umboðið fer frá félaginu.
2011
Ingvars Helgason og B&L
Eftir fjárhagslega endurskipulagningu Ingvars Helgasonar og B&L eignast Miðengi (dótturfélag Íslandsbanka), SP-fjármögnun og Lýsing félögin.
2012
Ingvar Helgason og B&L
Félag í eigu hjónanna Ernu Gísladóttur og Jóns Þórs Gunnarssonar kaupir félögin og tekur við rekstri þeirra um áramótin 2011/2012. Í kjölfarið eru þau sameinuð undir nafninu BL ehf.
BL
BL
Í júlí er opnaður Opel sýningarsalur í Ármúla og í september er öll starfsemi Hyundai flutt í Kauptún í Garðabæ.
Dacia
BL
Í september er kynnt til sögunnar nýtt umboð, Dacia, sem er samstarfsverkefni Renault/Nissan samsteypunnar og rúmönsku bílaverksmiðjunnar Pitesti Romania.
2014
BL hættir sölu OPEL
Bílabúð Benna tók við Opel á Íslandi ásamt allri þjónustu við Opel viðskiptavini.
BL hefur Sölu á Jaguar
Einn virtasti og metnaðarfyllsti bílaframleiðandi í heimi, frumsýnir nýjan JAGUAR F-PACE sportjeppa, JAGUAR XE og XF með fjórhjóladrifi og JAGUAR F-TYPE
BL hefur sölu á MINI
MINI er dótturfyrirtæki BMW Group sem hefur staðið fyrir umtalsverðri þróun á þessu sögufræga og vinsæla merki frá 1994 þegar fyrirtækið var keypt frá Bretlandi.
2018
Höfuðstöðvar Jaguar Land Rover vígðar
BL opnar nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar fyrir merki Jaguar Land Rover við Hestháls 6-8 í Reykjavík og var fjölmenni gesta á fyrsta formlega opnunardeginum laugardaginn 17. mars.
2019
BL með jafnlaunavottun Jafnréttisstofu, fyrst bílaumboða landsins
Í desember 2019 hlaut BL jafnlaunavottun Jafnréttisstofu og var jafnframt fyrsta bifreiðaumboð landsins til að hljóta vottunina. Um er að ræða stjórnunarstaðalinn IST 85:2012 fyrir jafnlaunakerfi, sem BL hefur m.a. samþætt eigin jafnlauna- og jafnréttisstefnu sem fyrirtækið hefur starfað eftir um árabil.
MG motor kynnt
Hið sögufræga bílamerki MG sem margir þekkja frá gamalli tíð hóf formlega innreið sína á íslenska bílamarkaðinn í júní 2020
2021
Umboð Invicta Electric opnað
Umboðið fyrir rafknúin farartæki frá spænska fyrirtækinu Invicta Electric sem selur mismunandi gerðir 100% rafdrifinna fólks- og sendibíla ásamt rafknúnum reiðhjólum, rafmagnsvespum og rafskútum var opnað
2022
Umboð Hongqi opnað
Á haustmánuðum 2022 bættist Hongqi E-HS9 í úrval rafbíla BL. Rúmgóður bíl sem hlaðinn er þægindum og tækni og hentar íslenskum aðstæðum fullkomlega.