Alrafmagnaður og aldrifinn D-MAX EV til BL
Japanski bílaframleiðandinn Isuzu Motor Group hefur hafið fjöldaframleiðslu á rafdrifnum D-MAX með fjórhjóladrifi fyrir Evrópumarkað í verksmiðju sinni í Samron í Tælandi.

Gert er ráð fyrir fyrstu bílunum til BL í september eða byrjun október. Isuzu D-MAX EV verður fyrsti fjöldaframleiddi rafdrifni pallbíllinn í sínum stærðarflokki með fjórhjóladrifi sem kemur á heimsmarkað.
Aldrifinn með mikla getu
Athygli vekur að hinn alrafmagnaði Isuzu D-MAX EV gefur í engu eftir í samkeppni við bróður sinn, hina nýju kynslóð dísilknúna pallbílsins D-MAX, er varðar drif- og dráttargetu enda er D-MAX EV aldrifinn og með 3,5 tonna dráttargetu. Forsenda þessarar miklu dráttargetu og rúmlega eins tonna burðargetu á palli eru m.a. 66,9 kWh rafhlaða og öflugir 140 kW rafmótorar á nýlega hönnuðum e-öxlum (e-Axles). Saman skila mótorarnir 325 Nm togkrafti.
Mætir mismunandi kröfum
Eigin þyngd D-MAX EV er 2.350 kg eða um 300 kg þyngri en dísilútgáfan. Engu að síður er kílómetradrægni rafdrifins D-MAX allt að 361 km við bestu aðstæður og er pallbíllinn því fyllilega hannaður til að mæta bæði kröfum notenda atvinnu- og heimilisbíla sem vænta svipaðra afkasta og gerð er krafa um til pallbíla almennt.

Hleðsla D-MAX EV
Hleðslutími í AC stöð frá 0-100% er um tíu klukkustundir og um ein klukkustund frá 20-100% í DC-hleðslustöð. Isuzu útilokar ekki að framleiðandinn bjóði síðar aðrar útgáfur af D-MAX, svo sem tvinn- og tengiltvinnútfærslur, enda fari það fyrst og fremst eftir kröfum markaðarins, þar sem notagildið er mismunandi.
Mikil og sterk viðbrögð á kynningu
Isuzu kynnti D-MAX EV pallbílinn fyrst á alþjóðlegu bílasýningunni sem haldin var í Bangkok í Taílandi í mars síðastliðnum og vegna mikils áhuga og eftirspurnar á mörgum lykilmörkuðum tók fyrirtækið fljótlega ákvörðun um fjöldaframleiðslu fyrir alla helstu markaði.