30. október 2026

BMW á Íslandi tekist að tryggja sér sérstaka aukaframleiðslu á iX3 vegna mikillar eftirspurnar

BMW Group afhenti meira en 1,7 milljónir ökutækja á heimsvísu frá áramótum til loka september. Í söluárangrinum gegnir hin nýja kynslóð BMW „Neue Klasse“ burðarhlutverki og jókst salan í Bandaríkjunum um 3,4% og Evrópu um 4,5%. Af öðrum ökutækjum ólöstuðum er það einkum hinn nýi rafknúni BMW iX3 sem leikið hefur stórt hlutverk á árinu, ekki síst í Evrópu.

BMW iX3 hefur slegið í gegn

BMW iX3 var frumsýndur seint á síðasta ári í München og kom formlega á markað í mars. Hann var frumsýndur hér á landi í lok apríl en förpantanir viðskiptavina hófust þó talsvert fyrr. Er óhætt að segja að bíllinn hafi slegið í gegn, ekki síst á Evrópumarkaði, þar sem yfir 100 þúsund eintök hafa verið afhent viðskiptavinum. Að sögn Ómars Magnússonar, söluráðgjafa hjá BMW á Íslandi hafa rúmlega 100 manns hér á landi fengið afhentan iX3 það sem af er árinu og bíða margir eftir að fá sinn bíl afhentan.

Hafa tryggt sér fleiri

„Þetta er einhver mesta eftirspurn eftir ákveðnum bíl frá BMW sem við höfum séð og það sama virðist eiga við annars staðar í Evrópu, þar sem yfir 100 þúsund bílar hafa verið afhentir þannig að söluárangurinn virðist sambærilegur hér hlutfallslega og á meginlandinu,“ segir Ómar, sem getur þess jafnframt að vegna eftirspurnarinnar hafi þeim tekist að tryggja sér aukna hlutdeild af framleiðslunni á iX3 hjá framleiðandanum sem nú er væntanleg til landsins. „Við höfum tryggt okkur ágætan fjölda bíla umfram upphaflegar áætlanir og margir þeirra eru nú þegar fráteknir.“

Farsælasta markaðssetningin hingað til

Að sögn talsmanna BMW Group hefur fyrirtækið aldrei áður staðið frammi fyrir jafn mikilli eftirspurn eftir tiltekinni nýrri gerð BMW og þeirri sem iX3 er að sýna á mörkuðunum núna. „Þessi mikli áhugi á iX3 hefur alls ekki farið fram hjá okkur. Það er greinilegt að bíllinn hefur hitt í mark hjá viðskiptavinum, enda sameinar bíllinn nýjustu tækni BMW, glæsilega hönnun, mikla drægni og framúrskarandi aksturseiginleika,“ segir Ómar.

Er nú þegar margverðlaunaður

Þrátt fyrir skamman tíma á markaði hefur iX3 hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal sem Heimsbíll ársins 2026 og Rafbíll ársins í heiminum 2026. Þá var hann kjörinn Bíll ársins 2026 hjá TopGear og World Car auk þess sem hann hefur víða verið kjörinn „Bíll ársins“ í einstökum löndum. „Við finnum skýrt fyrir þeirri miklu eftirvæntingu sem ríkir í kringum þennan nýja kafla í rafbílaþróun BMW, og það er virkilega spennandi að upplifa þetta með viðskiptavinum okkar hér heima,“ segir Ómar.