BL lækkar verð nýrra bíla
BL við Sævarhöfða hefur lækkað verð á nýjum fólksbílum frá nokkrum bílaframleiðendum og nær lækkunin að auki til sendibíla hjá umboðinu. Lækkanirnar nema frá 300 þúsund krónum upp í 1.500 þúsund krónur.
Meðal þeirra fólksbíla sem lækka í verði má nefna fjórhjóladrifna rafmagnsjepplinginn Hongqi EHS5 sem verður eftir lækkunina einn hagkvæmasti bíllinn í sínum flokki. Þá lækkar Renault 5, sem er stórskemmtilegur og lipur rafmagnsfólksbíll, sem og Nissan Leaf, sem hefur margsannað sig og er einn mest seldi rafbíllinn á Íslandi. Að lokum má nefna MG4 Urban, sem mun að öllum líkindum vekja mikla athygli á nýju verði, enda fáheyrt að hægt sé að fá nýjan rafmagnsfólksbíl með 7 ára ábyrgð á 2.990.000 kr. að teknu tilliti til rafbílastyrks.
Sendibílar fengu einnig væna lækkun, eins og fyrr segir, og má þar helst nefna rafmagnssendibílinn Renault Master E-tech, sem lækkar undir 10 milljónir króna og verður þar með styrkhæfur fyrir rafbílastyrk.
„Við höfum verið að vinna í undirbúningi lækkananna undanfarna daga. Ástæðan er sú sama og Hyundai hefur kynnt, það er styrking krónunnar um 4% frá því í febrúar og vilji fyrirtækisins til að taka þátt í því verkefni að reyna að lækka verðbólgu, svo forsendur skapist fyrir lækkun stýrivaxta sem auðvitað er hagsmunamál okkar allra.“ segir Íris Ansnes, framkvæmdastjóri fjármála BL.
Íris segir lækkanirnar mismiklar eftir módelum. Nánari upplýsingar um einstakar útfærslur fást hjá söluráðgjöfum BL.