3. september 2026

BL og Grótta halda áfram öflugu samstarfi

BL og Handknattleiksdeild Gróttu undirrituðu í dag nýjan samstarfs- og styrktarsamning til næstu tveggja keppnistímabila.

BL og Handknattleiksdeild Gróttu undirrituðu í dag nýjan samstarfs- og styrktarsamning til næstu tveggja keppnistímabila.

Með samningnum heldur BL áfram sem lykilbakhjarl Gróttu og styður við öflugt starf handknattleiksdeildarinnar, allt frá yngri flokkum upp í meistaraflokka. BMW verður áfram sýnilegt í tengslum við starf félagsins, meðal annars á keppnistreyjum en auk þess verður haldið sérstakt BMW mót fyrir yngri iðkendur.

„Við hjá BL erum mjög ánægð með að halda áfram góðu og farsælu samstarfi við Gróttu. Félagið vinnur öflugt starf fyrir iðkendur á öllum aldri og það skiptir okkur máli að geta stutt við bæði afreksstarfið og þá mikilvægu uppbyggingu sem á sér stað í yngri flokkunum,“ segir Sigrún Buith Jónsdóttir, markaðsstjóri BL.

Samningurinn gildir út keppnistímabilið 2027/2028.

Harpa Guðfinnsdóttir undirritaði samninginn fyrir hönd Gróttu og Sigrún Buithy Jónsdóttir fyrir hönd BL.