BMW iX3 frumsýndur í Hörpu
Verðlaunabíllinn BMW iX3 var frumsýndur í Hörpunni í síðustu viku við einstaklega góðar viðtökur.
Mikill fjöldi gesta lagði leið sína í Hörpu til að berja nýja rafmagnsjeppann augum, og var stemningin á viðburðinum með besta móti.
Meðal heiðursgesta voru Heike Sylvia Pfeil, Paul de Courtois og Cédric Martinez frá BMW, sem fóru yfir helstu nýjungar bílsins og þá tækni sem liggur að baki þessari nýju kynslóð rafbíla frá BMW. Þau lýstu sérstakri ánægju með áhuga Íslendinga á bílnum og þeim hlýju móttökum sem þau fengu hér á landi.

Kraftmikill rafbíll með framúrskarandi drægni
BMW iX3 er 100% rafmagnaður fjórhjóladrifinn jeppi sem skilar 469 hestöflum og fer úr kyrrstöðu í 100 km/klst. á aðeins 4,9 sekúndum. Með 108,7 kWh rafhlöðu er drægnin allt að 805 km samkvæmt WLTP-mælingum — einn besti árangur sem sést hefur í þessum flokki.
Hleðslan er einnig til fyrirmyndar: hraðhleðsla úr 10–80% tekur aðeins 21 mínútu í 400 kW DC hleðslustöð, og full hleðsla heima með 11 kW AC tekur um 11 klukkustundir. Dráttargeta er 2.000 kg og farangursrýmið rúmgóð 520 lítrar — eða 1.150 lítrar með aftursæti niðri.

Ríkulegur staðalbúnaður
iX3 kemur ríkulega búinn frá verksmiðju, meðal annars með varmadælu, 360° myndavél, Parking Assistant Professional, BMW Panoramic Vision, þráðlausri hleðslu fyrir farsíma, hita í stýri og framsætum, lyklalausu aðgengi og BMW Digital Key. Bíllinn fæst í tveimur útgáfum:
- iX3 Series — kr. 11.990.000
- iX3 M-Sport Pro — kr. 12.990.000
M-Sport Pro útgáfan bætir við M-sport bremsum, Sport Boost, M sportsætum með nuddi, M útlitspakka, 20" M-felgum og fleiri sportlegum eiginleikum.
Bíllinn nær uppseldur — enn nokkur eintök í boði hjá BL
Spennan í kringum bílinn er gríðarleg, og endurspeglast það í eftirspurninni á heimsvísu. Bíllinn er nú þegar nær uppseldur hjá framleiðanda, en BL á enn nokkur laus eintök sem hægt er að tryggja sér. Við hvetjum þá sem hafa áhuga til að hafa samband sem fyrst.
Komdu og reynsluaktu
Besta leiðin til að upplifa BMW iX3 er að setjast undir stýri. Við bjóðum öllum áhugasömum að koma í heimsókn í sýningarsal BL og reynsluaka bílnum — finna fyrir kraftinum, þægindunum og þeirri tækni sem gerir iX3 að einum eftirsóttasta rafbíl á markaðnum í dag.
Hafðu samband við söluráðgjafa okkar í síma 525 8000 eða á [email protected]. Við hlökkum til að taka á móti þér!