BMW iX3 hlýtur tvöfaldan sigur á World Car Awards 2026
BMW iX3 var valinn bæði „World Car of the Year“ og „World Electric Vehicle“ árið 2026 á alþjóðlegu bílasýningunni í New York.
Um er að ræða fyrsta bílinn í hinni nýju „Neue Klasse“ línu BMW og vakti hann mikla athygli dómnefndar, sem skipuð var 98 bílablaðamönnum frá 33 löndum.
Dómnefndin lofaði sérstaklega aksturseiginleika, afköst og tækninýjungar bílsins. Með þessum árangri bætir BMW við tveimur nýjum titlum í safnið og hefur bílaframleiðandinn nú unnið til alls ellefu verðlauna í sögu World Car Awards.
BMW iX3 sameinar glæsilega frammistöðu, byltingarkennda tækni og einstaka akstursupplifun en hann býr yfir 345 kW afli eða 469 hö., 645 Nm togi og hröðun úr 0 í 100 km/klst. á aðeins 4,9 sekúndum.
BMW iX3 er með allt að 805 km drægni samkvæmt WLTP-mælingum og hann styður allt að 400 kW hraðhleðslu við kjöraðstæður og getur hann því farið úr 10% í 80% hleðslu á aðeins 21 mínútu.
BMW iX3 býr yfir nýrri kynslóð stjórn- og upplýsingakerfis frá BMW, Panoramic iDrive, en það sameinar skjái og upplýsingagjöf með skýrum og notendavænum hætti. Niðurstaðan er betri yfirsýn fyrir ökumann og einfaldari, þægilegri akstursupplifun. Um leið stýrir miðlægt stjórnkerfi, svokallað „Heart of Joy“, aksturseiginleikum bílsins, á meðan öflugar ofurtölvur sjá um sjálfvirkan akstur, bílastæðaaðstoð, afþreyingu og helstu grunn- og þægindakerfi. Með allt að tuttugufalt meiri reiknigetu en áður tryggir þessi háþróaða tækni BMW, framúrskarandi veggrip, mikla nákvæmni í akstri og einstaklega mjúka hemlun.
Samkeppnin var hörð í ár, en alls tóku 57 bílar þátt í kjörinu um „World Car of the Year “ og 43 bílar í „World Electric Vehicle “. Verðlaunin byggja á ítarlegum reynsluakstri og fagmati dómnefndarinnar.