22. júní 2026

Frumsýning á Subaru E-Outback

Íslandsvinurinn er mættur til leiks og er nú 100% rafmagnaður!

Nýr Subaru Outback er að lenda og er nú alrafmagnaður. Af því tilefni bjóðum við á frumsýningu laugardaginn 27. júní milli kl. 12-16 á Sævarhöfða 2.

Subaru Outback hefur verið einn vinsælasti bíll Subaru og markar alrafmagnaður Outback nýjan kafla í sögu þessa ævintýrabíls. Fjórhjóladrifinn með tveimur rafmótorum sem skila tafarlausu afli, allt að 526 km drægni* og 1.500 kg dráttargetu. Fullkominn fyrir íslenskar aðstæður, enda frábær torfærubíll með 21 cm undir lægsta punkt.

Hannaður fyrir ævintýri en jafnframt fullkominn fyrir daglegt líf

Fjórhjóladrif og háþróað X-Mode aksturskerfi tryggja framúrskarandi grip og stöðugleika við krefjandi aðstæður. Kerfið stýrir afli milli hjóla til að bæta aksturseiginleika og auka öryggi í snjó, hálku, á blautum vegum, möl og í bröttum brekkum. Ef hjól byrjar að spóla getur X-Mode bremsað það og beint meira afli til hjóla með betra grip, þannig að bíllinn kemst áfram þar sem aðrir gætu setið fastir.

Öryggi fjölskyldunnar í fyrirrúmi

Subaru Outback fór í gegnum Euro NCAP öryggisprófanir, sem eru taldar þær ströngustu í Evrópu fyrir nýja bíla. Niðurstaðan var hæsta mögulega einkunn, 5 stjörnur.

⭐⭐⭐⭐⭐

NÁNAR UM SUBARU OUTBACK