4. maí 2026

Hongqi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína

Leigubílstjórarnir Rúnar Þór og Ólafur Vilhjálmssynir hafa ekið Hongqi-bílum sínum yfir hálfa milljón kílómetra á rúmum þremur árum. Svo mikið að framleiðandinn sjálfur tók eftir.

Bræðurnir Rúnar Þór og Ólafur Vilhjálmssynir voru meðal fyrstu eigenda Hongqi á Íslandi þegar þeir tóku við sitthvorum EHS9 rafbílnum í janúar 2023. Síðan þá hafa þeir samanlagt ekið yfir 500.000 kílómetra við íslenskar aðstæður. Vegalengd sem jafnast á við meira en tólf hringi í kringum jörðina.

Þegar forsvarsmenn Hongqi heyrðu af þessari óvenju miklu notkun og ánægju bræðranna, buðu þeir þeim í ferð til Kína.

„Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu,“ segir Ólafur. „Maður átti alls ekki von á því að fá boð um að heimsækja Kína, einungis vegna þess að maður er ánægður með bílinn sinn.“

Inn í framtíð bílaframleiðslu

Í ferðinni heimsóttu bræðurnir höfuðstöðvar Hongqi í Changchun, þar sem þróun, hönnun og framleiðsla fer fram, og sóttu jafnframt alþjóðlegu bílasýninguna í Peking.

„Upplifunin var eiginlega eins og að stíga inn í framtíðina,“ segir Rúnar. „Maður sá hversu hratt tæknin er að þróast og hversu langt þessir framleiðendur eru komnir.“

IMG_20260424_162114

Stóðust íslenskan raunveruleika

Rúnar er nú að nálgast 300.000 kílómetra á sínum EHS9, en Ólafur ók um 200.000 kílómetra á samskonar bíl áður en hann skipti yfir í nýrri og sportlegri Hongqi EHS7.

„Þegar maður er kominn með nærri 300 þúsund kílómetra á bíl þá fer venjulega að bera á talsverðu sliti. En hér sér ótrúlega lítið á honum. Hann er ennþá þéttur, hljóðlátur og mjög góður í akstri,“ segir Rúnar.

Ólafur bætir við að öryggi og stöðugleiki í vetrarfærð hafi komið honum mest á óvart, og báðir nefna að þjónusta BL hafi verið fagleg og hraðvirk.

Image (3)

Farþegar finna muninn

Viðbrögð farþega láta ekki á sér standa. „Fólk finnur strax að þetta er ekki hefðbundinn leigubíll,“ segir Rúnar. Erlendir ferðamenn þekki oft merkið og tengi það við lúxusbíla erlendis.

Hongqi er einn elsti og virtasti bílaframleiðandi Kína, stofnaður árið 1958, og hefur þjónað þjóðarleiðtogum landsins í áratugi. Framleiðandinn stefnir nú að mikilli sókn á Evrópumarkaði á næstu árum, þar sem rafbílar leika lykilhlutverk.

Nýverið hóf BL afhendingar á Hongqi EHS5, nýjum sportlegum rafjeppa sem byggir á sömu hönnunarstefnu og stærri systurgerðir merkisins.

Lesa má greinina í heild sinni á Vísi: Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína