11. febrúar 2026

Hyundai Inster og MG S6 sigurvegarar El Prix 2026

Rafbílar eru sífellt oftar metnir í raunprófum sem eiga að gefa skýrari mynd af daglegri notkun en uppgefnar WLTP-tölur einar og sér.

Eitt þeirra prófa er El Prix, umfangsmikið samanburðarpróf sem fer fram í Noregi og hefur vakið mikla athygli undanfarin ár.

El Prix er skipulagt af NAF, systurfélagi FÍB í Noregi, í samstarfi við norska bílatímaritið Motor. Prófið er haldið bæði á sumrin og veturna og felst í því að rafbílar eru keyrðir fullhlaðnir við sömu aðstæður þar til drægni þeirra er fullreynd.

Í vetrarútgáfu El Prix 2026 reyndust aðstæður með þeim erfiðustu sem sést hafa. Hitastigið fór niður í allt að −32 gráður, og hafði kuldinn veruleg áhrif á drægni flestra bíla í prófinu. Bílarnir voru keyrðir sömu leið þar til þeir gátu ekki lengur haldið löglegum aksturshraða, sem gaf skýra mynd af raunverulegri drægni við slíkar aðstæður.

Þegar niðurstöðurnar voru teknar saman kom í ljós að Hyundai Inster og MG S6 stóðu sérstaklega vel þegar horft var til hlutfallslegs drægnitaps, það er hversu mikið bílarnir víkja frá uppgefnum WLTP-tölum. Báðir misstu um 29% af uppgefinni drægni, sem var meðal þess lægsta sem mældist í prófinu.

Til samanburðar misstu flestir aðrir bílar frá um þriðjungi og allt að 46% af drægninni við sömu aðstæður. Meðal drægnitap þeirra 24 bíla sem tóku þátt í prófinu var 37,7%, sem undirstrikar hversu mikill munur getur verið á WLTP-drægniviðmiði og raundrægni í miklum kulda.

Í El Prix er ekki aðeins horft til þess hve langt bílarnir komast, heldur einnig hvernig þeir halda frammistöðu þegar aðstæður eru krefjandi. Þótt megináherslan sé á drægni er einnig litið til hleðslu og þess hvernig kuldi hefur áhrif á hleðsluhraða, enda getur köld rafhlaða dregið úr hleðslugetu, sérstaklega framan af hleðslu.

Niðurstöður El Prix 2026 sýna enn á ný hversu mikilvægt er að horfa til raunprófa þegar rafbílar eru metnir, ekki síst fyrir notkun yfir vetrarmánuðina, þar sem kuldi, upphitun og aðstæður á vegum geta haft veruleg áhrif.