14. október 2026

Nýr Hyundai IONIQ 3 frumsýndur laugardaginn 17. október

Nýr alrafmagnaður Hyundai IONIQ 3 er mættur til okkar og verður frumsýndur laugardaginn 17. október í Kauptúni 1, á milli kl. 11 og 15.

Hyundai IONIQ 3 er fallega hannaður og sportlegur fólksbíll sem færir þér meira frelsi með frábærri drægni, eða allt að 496 km*, leiftursnöggri hleðslu, úthugsuðu rými fyrir farþega og farangur ásamt nýjustu upplýsinga- og leiðsögutækni Hyundai.

Snjallari og tengdari akstur

Nýja Pleos Connect afþreyingar- og upplýsingakerfið býður upp á skarpa grafík, leiðandi skjái og þægilega raddstýringu sem nýtir gervigreind. IONIQ 3 markar upphaf Pleos Connect upplýsingakerfisins og setur ný viðmið. Upplýsingakerfið auðvelda aðgang að aðgerðum í bílnum, leiðsögn og fjölbreyttum stillingarmöguleikum.

Öryggi á heimsmælikvarða

Til að auka hugarró býður IONIQ 3 upp á nýjustu öryggis- og akstursaðstoðarkerfin Hyundai. Hyundai SmartSense, er háþróað akstursaðstoðarkerfi sem gerir aksturinn auðveldari, öruggari og afslappaðri með því að greina og vara við hugsanlegum hættum og aðstoða við hemlun og stýringu sé þess þörf.

Við hlökkum til að taka á móti þér á frumsýningu Hyundai IONIQ 3, laugardaginn 17. október á milli kl. 11 og 15, í sýningarsal okkar að Kauptúni 1.

*Drægni samkvæmt WLTP-mælingum.