1. apríl 2026

Hyundai IONIQ 6 N valinn „World Performance Car“ ársins 2026

Hyundai IONIQ 6 N var valinn „World Performance Car“ ársins 2026 í dag á hinum virtu World Car Awards, sem afhent voru við hátíðlega athöfn á bílasýningu í New York.

Hyundai IONIQ 6 N var valinn „World Performance Car“ ársins 2026 í dag á hinum virtu World Car Awards, sem afhent voru við hátíðlega athöfn á bílasýningu í New York.

Þetta er í annað sinn á þremur árum sem N-lína Hyundai vinnur þennan titil, en IONIQ 5 N hlaut hann árið 2024. Þetta er einnig fimmta árið í röð sem Hyundai fær viðurkenningu frá World Car Awards.

Í tilkynningu frá Hyundai segir að viðurkenningin sé mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem lögð hefur verið í þróun bílsins. José Muñoz, forstjóri Hyundai Motor Company, segir verðlaunin skipta miklu máli fyrir starfsfólk fyrirtækisins um allan heim.

„Þessi viðurkenning frá dómnefnd World Car Awards skiptir miklu máli fyrir þá þúsundir starfsmanna Hyundai sem komu að hönnun og þróun bílsins. Við erum afar þakklát fyrir þennan heiður og þeim viðskiptavinum um allan heim sem velja Hyundai á hverjum degi,“ er haft eftir Muñoz.

IONIQ 6 N þykir marka ný tímamót í rafdrifnum afkastabílum. Hann sameinar mikil afköst og háþróaða tækni með áherslu á akstursupplifun, bæði á vegi og braut. Hann skilar allt að 641 hestöflum með svokölluðu N Grin Boost og nær 0–100 km/klst. á um 3,2 sekúndum. Þá er hann búinn akstursmiðaðri tækni á borð við N e-Shift, sem líkir eftir gírskiptingum, og N Active Sound+, sem skapar hrífandi hljóðupplifun fyrir ökumanninn.

Rafhlaðan er 84 kWst og við kjöraðstæður er hægt að hlaða hana úr 10% í 80% á um 18 mínútum með 350 kW hraðhleðslu.

Árangurinn nú bætist við langan lista viðurkenninga Hyundai frá World Car Awards síðustu ár. Þar má nefna að INSTER var valinn rafbíll ársins 2025, IONIQ 5 N afkastabíll ársins 2024 og IONIQ 6 og IONIQ 5 hlutu bæði titlana bíll ársins, rafbíll ársins og hönnun ársins árin 2023 og 2022.

Samfelldur árangur Hyundai á verðlaununum undirstrikar sterka stöðu á sviði nýsköpunar í hönnun og tækni.

  • 2026: Hyundai IONIQ 6 N - World Performance Car
  • 2025: INSTER (CASPER Electric) – World Electric Vehicle
  • 2024: IONIQ 5 N – World Performance Car
  • 2023: IONIQ 6 – World Car of the Year, World Electric Vehicle, World Car Design of the Year
  • 2022: IONIQ 5 – World Car of the Year, World Electric Vehicle, World Car Design of the Year