Lækkun Orkusjóðsstyrks
Við vekjum athygli á breytingum á styrkjum Orkusjóðs sem taka gildi 1. nóvember.
Umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð sem felur í sér m.a. breytingar á styrkjum Orkusjóðs til kaupa á nýjum rafbílum. Þar segir:
"Frá og með 1. nóvember verður hámarksverð styrkhæfra fólksbíla 8 milljónir króna í stað 10 milljóna og styrkfjárhæð vegna hvers bíls 400 þúsund krónur í stað 500 þúsund króna. Áfram verður veittur stuðningur við orkuskipti sendi-, vöru- og hópferðabíla en slíkir styrkir verða eingöngu veittir lögaðilum og einstaklingum í virkum atvinnurekstri."
Hægt er að lesa sér til um málið hér.
Hér fyrir neðan má sjá dæmi um bíla sem missa Orkusjóðsstyrkinn 1. nóvember næstkomandi.
Við hvetjum þau sem eru að velta fyrir sér rafbílum á verðbilinu 8–10 milljónir króna til að ganga frá kaupunum sem fyrst svo hægt sé að sækja um og tryggja styrkinn fyrir 1. nóvember.
IONIQ 5 Calligraphy og N-Line
Hrífandi fegurð og framúrskarandi tækni – IONIQ 5 endurskilgreinir hugmyndina um rafbíla. Framúrstefnuleg hönnun í bland við nýjustu snjalltækni einkennir bílinn sem kemur þér lengra.
Ábyrgðartími: 7 ár / 150.000 km akstur.
Nissan Ariya Evolve
Nissan Ariya sameinar djarfa, straumlínulagaða hönnun, rúmgott og kyrrlátt innanrými og akstursupplifun sem lætur hverja ferð líða áreynslulaust. Þessi fágaði rafjeppi er hannaður fyrir þá sem vilja sameina stíl, þægindi og nútímatækni í einum pakka.
Ábyrgðartími: 5 ár / 160.000 km akstur.
Hongqi EHS7 Exclusive
Hongqi EHS7 sameinar glæsilega hönnun og tækninýjungar í fremstu röð ásamt ofurhraðri hleðslu. Með rúmgóðu innanrými, þráðlausum uppfærslum og skýra áherslu á þægindi og öryggi býður Hongqi EHS7 upp á einstaka akstursupplifun sem heillar.
Ábyrgðartími: 5 ár / 150.000 km akstur.