Land Rover Defender Trophy kynntur á Hesthálsi
Land Rover á Íslandi kynnir nk. laugardag, 31. janúar milli kl. 12 og 16, Defender Trophy Edition, sérútgáfu þessa öfluga jeppa, sem sérstaklega var þróuð til að heiðra Defender Trophy keppnina sem Land Rover hefur staðið fyrir í 70 ár og þar af undanfarin 20 ár í samstarfi við alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin Tusk.
300 hestöfl
Defender Trophy Edition er sérútbúin 110 gerð jeppans, búin 300 hestafla bensínvél í tengiltvinnútfærslu (PHEV), með þriggja tonna dráttargetu og fáanlegur með vali um tvo liti; „deep sandglow yellow“ og „keswick green“ og er sýningarbíll helgarinnar í fyrrnefnda litnum.
Hannaður fyrir krefjandi aðstæður
Defender Trophy er hlaðinn aukahlutum og má þar m.a. nefna sjónlínuskjá, upplýst hurðaþrep með merkingum Trophy, Ebony Windsor leðurklæðningu í öllu innanrými, háþróað drifkerfi Land Rover, vandað afþreyingarkerfi og loftpúðafjöðrun sem gerir m.a. kleift að aka í 90 cm djúpu vatni auk þess sem bíllinn er með 100% læsanlegu afturdrifi svo nokkuð sé nefnt. Á ytra byrði eru einnig Trophy merkingar, auk þess sem bíllinn er á sérútbúnum 20 tommu svörtum glansfelgum og dekkjum fyrir fjölbreyttar aðstæður.
Val um meiri búnað
Meðal aukahluta sem hægt er að bæta við á Defender Trophy eru t.a.m. tæringarþolin hleðslugrind á toppinn og samfellanlegur þakstigi á aftanverða vinstri hlið bílsins sem veitir auðveldan aðgang að farangri, skóflu og öðru á toppnum. Einnig má nefna vatnshelt og læsanlegt hliðarhólf, sem tilvalið er fyrir gönguskó, blautbúninga eða annað sem fólk vill e.t.v. síður hafa í sjálfu farþegarýminu. Loks má nefa snorkel-loftinntak, sem verndar vélina og er sérlega hentugt í ám og á rykugum malarvegum.
350 hestafla dísilvél í boði
Þess má geta að viðskiptavinir geta einnig fengið sérpantaðan Defender Trophy í dísilútgáfu Trophy í Mild Hybrid útfærslu og er sú gerð 350 hestöfl og með 3,5 tonna dráttargetu.
Þú getur skráð þig!
Að lokum má geta þess að Land Rover hefur í samstarfi við náttúruverndarsamtökin Tusk hrint af stokkunum nýrri og krefjandi aksturskeppni þar sem borgurum 50 landa, Íslandi þar á meðal, er boðið að sækja um þátttöku í þeirri von að komast að sem fulltrúar síns lands í undankeppni erlendis í vor. Á vefsíðu Land Rover á Íslandi hefur verið opnað fyrir umsóknir frá innlendum ökumönnum með óstöðvandi ævintýraþrá.
Nánari upplýsingar
Á sýningunni laugardaginn 31. janúar verða léttar veitingar í boði. Nánari upplýsingar um Defender Trophy eru að finna á landrover.is og um Trophy keppnina í fréttasafni á bl.is.