4. september 2026

Land Rover og Kalli saman í 30 ár hjá BL

Um þessar mundir eru 30 ár liðin síðan Bifreiðar og landbúnaðarvélar hf. (nú BL ehf.) tóku við umboði fyrir breska bílaframleiðandann Land Rover, en fyrirtækið var þá til húsa að Suðurlandsbraut 14, þar sem einungis var gert ráð fyrir einum bíl í sýningarsal, samanborið við yfir tuttugu bíla í salnum á Hesthálsi. Á þessum tíma hafði sala bíla frá breska framleiðandanum legið niðri í nokkur ár, en uppskar mikinn sölukipp strax á fyrsta árinu í kjölfar kaflaskilanna.

Eins og gerst hafi í gær

En það var ekki bara vörumerkið sem eignaðist um þetta leyti nýtt „heimili“ á Íslandi því um sömu mundir 1996, réðst Karl Óskarsson til starfa sem sölustjóri Land Rover og á hann því einnig 30 ára starfsafmæli með Land Rover á Íslandi. „Þetta er búið að vera skemmtilegur tími allt frá upphafi og það er áhugavert að líta til baka núna þegar maður hefur í huga alla þá þróun og breytingar sem merkið hefur gengið í gegnum á þessum þremur áratugum. Og ég er ekkert að hætta alveg strax enda finnst mér eins og ég hafi komið hingað í gær því þetta er svo skemmtilegt starf,“ segir Karl, eða Kalli eins og hann er jafnan kallaður.

Merkið tók mikið flug

Hann segist hafa byrjað á spennandi tíma 1996 þegar sala á bílum framleiðandans hafði legið niðri um árabil hér á landi. Við tók kraftmikil kynning til að koma merkinu á flot aftur meðal bæði nýrra og tryggra aðdáenda um land allt. „Fljótlega bættust margir fleiri í viðskiptavinahópinn, m.a. Embætti forseta Íslands, sem fékk nýjan Discovery sem notaður var til „aðdrátta á Bessastöðum og til hverskonar ferða, bæði utanbæjar og innan,“ eins og Kornelíus Sigmundsson, þáverandi forsetaritari, gat um í samtali við Tímann í júní 1997,“ segir Kalli. Þess má geta að frá 1996 hafa komið þrjár kynslóðir Range Rover á markaðinn, fimm kynslóðir Discovery og tvær Defender og hefur Kalli stjórnað sölu á þeim öllum á tímabilinu.

Í senn hreinir lúxusbílar og getumiklir jeppar

Fyrirtækið hóf sölu og kynningu á Land Rover af miklu krafti og urðu Discovery og Defender 110 fljótlega vinsælustu bílarnir í vörulínunni hér á landi. „Við héldum til að mynda umfangsmiklar jeppasýningar til að kynna merkið á ný, þar sem sýndar voru allar gerðir merkisins og í mismunandi útfærslum; t.d. mikið breyttir Defender 110 og 130 jeppar á stórum dekkjum og björgunarsveitir tóku meðal annars í sína þjónustu. Við gerðum ýmislegt fleira til að vekja athygli og í dag, 30 árum síðar, á Land Rover sér mjög traustar rætur meðal landsmanna sem þekkja þessar mismunandi gerðir; Discovery, Defender og Range Rover. Þetta eru allt í senn hreinir lúxusbílar og getumiklir jeppar til erfiðra ferða langt út fyrir alfaraleiðir enda drifkerfið frá Land Rover alveg einstakt. Það hefur verið virkilega gaman að vera samferða merkinu hér hjá fyrirtækinu í þessi þrjátíu ár og maður er alltaf jafn spenntur fyrir næstu nýjungum frá framleiðandanum enda stöðvast sú þróun aldrei í bílgreininni, ekki frekar en öðrum iðnaði,“ segir Karl Óskarsson á þessum tímamótum.

Afmælissýning á laugardag

Í tilefni tímamótanna heldur Land Rover við Hestháls sérstaka afmælissýningu með léttum veitingum laugardaginn 5. september frá kl. 11 til 16 þar sem sýndar verða nýjustu bílar framleiðandans.