24. september 2026

Lokun 2G og 3G farsímakerfa

Fjarskiptafyrirtæki eru smámsaman að slökkva á 2G og 3G farsímakerfum í Evrópu. Þessi lokun, sem hófst árið 2024, mun halda áfram til ársins 2029 eftir áætlun sem er ólík fyrir hvert fjarskiptafyrirtæki og hvert land.

Á Íslandi hafa Síminn, Nova og Sýn (Vodafone) tilkynnt um lokun 2G- og 3G-farsímakerfa í áföngum og eftir svæðum. Lokun 2G fór fram á árunum 2024 - 2026 og lokun 3G hófst í ársbyrjun 2026. Frekari upplýsingar um lokun farsímakerfa á Íslandi má finna á vef Fjarskiptastofu.

Áhrif á neyðarsímtalsaðgerð (eCall) í bílum

Lokun 2G- og 3G-farsímakerfa hefur áhrif á neyðarsímtalsaðgerð (eCall) í þeim ökutækjum þar sem búnaðurinn reiðir sig á þessi farsímakerfi. Þegar viðkomandi farsímakerfi er ekki lengur tiltækt getur eCall-aðgerðin ekki komið á þeirri tengingu sem hún var hönnuð fyrir.

SOS-hnappur eCall-kerfisins er yfirleitt staðsettur í lofti bílsins og grænt ljós gefur til kynna að hnappur sé virkur. Nánari upplýsingar um virkni og staðsetningu búnaðarins má finna í eigendahandbók viðkomandi bíls.

Sem stendur er því miður engin lausn í boði til að koma eCall-aðgerðinni aftur í virkni í þeim bílum sem verða fyrir áhrifum af lokun 2G- og 3G-kerfanna. Um er að ræða breytingu á fjarskiptainnviðum sem hefur áhrif á bíla í mörgum löndum og bílaframleiðendur og bílaumboð um allan heim eru að skoða málið og mögulegar lausnir.

Vinsamlega athugið að lokun 2G- og 3G-farsímakerfa hefur ekki áhrif á aksturshæfni bílsins. Ökutækið er áfram aksturshæft og heldur áfram að uppfylla gildandi kröfur um gerðarviðurkenningu.