11. mars 2026

ME Travel festir kaup á átta nýjum ökutækjum frá BL

ME Travel ehf. hefur fest kaup á átta nýjum og vel útbúnum ökutækjum frá BL ehf. Um er að ræða ökutæki frá Iveco Bus, Feniksbus og Renault sem uppfylla strangar kröfur um öryggi, þægindi og rekstrarhagkvæmni.

Flotinn samanstendur af fjallabílum, ferðamannarútum, langferðarrútu auk nýrra sendibíla fyrir verkstæði fyrirtækisins. Með fjárfestingunni styrkir ME Travel innviði sína og eykur getu til að sinna fjölbreyttum verkefnum í ferðaþjónustu.

Eigendur ME Travel, Ásmundur Halldór Einarsson og Elín Elísabet Hreggviðsdóttir, undirrituðu samninginn við BL í nýju húsnæði fyrirtækisins í Turnahvarfi í Kópavogi.

Fyrstu ökutækin eru þegar komin til landsins og fengu feðgarnir Mummi og Einar þau afhent í Kauptúni á dögunum.

Kaupin marka mikilvægt skref í stöðugri uppbyggingu ME Travel og leggja grunn að áframhaldandi samstarfi við BL.

Við óskum ME Travel innilega til hamingju!