MG sýnir framtíðina á Goodwood
MG mun frumsýna fjóra spennandi rafbíla á Goodwood Festival of Speed 2025, sem fer fram 10.–13. júlí næstkomandi.

Þar á meðal eru tveir glænýir hugmyndabílar. Cyberster Black, glæsilegur sportbíll með svörtum lúxusáherslum og Cyber X, djarfur „urban explorer“ með framúrstefnulegu útliti.
Í fyrsta sinn verður einnig hægt að sjá tvo nýja bíla frá MG, sem kynntir verða við upphaf hátíðar. Annar þeirra mun sýna afl sitt í hinum þekkta brekkuakstri hátíðarinnar ásamt MG EX4, sem snýr aftur í nýjum búning sem heiðrar kappakstursbílinn MG Metro 6R4.
Á sýningarsvæði MG verður hægt að sjá vinsælu gerðirnar MG S5 EV og MG HS, auk sérstakrar upplifunar með MG4 EV XPower.