Nýr Nissan LEAF krýndur sigurvegari ársins 2026 af Women’s Worldwide Car of the Year
Nýr Nissan LEAF hefur verið valinn bíll ársins 2026 af Women’s Worldwide Car of the Year (WWCOTY) – hæstu viðurkenningu sem alþjóðleg dómnefnd, skipuð eingöngu konum í bílablaðamennsku, veitir.
Nýr Nissan LEAF hefur verið valinn bíll ársins 2026 af Women’s Worldwide Car of the Year (WWCOTY) – hæstu viðurkenningu sem alþjóðleg dómnefnd, skipuð eingöngu konum í bílablaðamennsku, veitir.
- Verðlaunin fagna framúrskarandi hönnun LEAF, rafdrifstækni og notagildi í daglegu lífi
- Veitt af alþjóðlegri dómnefnd og viðurkenna LEAF sem frumkvöðul á heimsvísu í rafbílum
LEAF var fyrst kynntur árið 2010 sem fyrsti rafbíll heims í fjöldaframleiðslu og hefur í meira en 15 ár átt stóran þátt í að knýja fram umskipti yfir í rafvæðingu samgangna. Nú, í þriðju kynslóð sinni, byggir nýr LEAF á þeirri arfleifð með straumlínulagaðri hönnun, aukinni drægni og nýstárlegri tækni – eiginleikum sem dómnefnd WWCOTY lagði sérstaka áherslu á í ár. LEAF stóð upp úr í samkeppni við 55 aðra bíla og undirstrikar þannig sterka stöðu sína meðal fjölbreytts úrvals alþjóðlegra keppinauta.
WWCOTY metur bíla út frá því sem skiptir daglega ökumenn mestu máli, þar á meðal öryggi, hönnun, verðmæti, notkun og umhverfisáhrifum. Dómnefndin, sem samanstendur af 86 fremstu bílablaðakonum frá yfir 50 löndum, hrósaði LEAF fyrir raunhæfa nálgun á rafvæðingu og jafnvægið á milli háþróaðra rafknúinna afkasta og einfalds, ánægjulegs daglegs aksturs.
Nýr Nissan LEAF er væntanlegur til okkar og við getum ekki beðið eftir að sýna þér hann!