Stjórnendaskipti hjá BL
BL hefur ráðist í breytingar á stjórnendahópi fyrirtækisins.

Þær breytingar hafa orðið í framkvæmdastjórn BL ehf. að Heiðar Sveinsson, framkvæmdastjóri Hyundai, hefur látið af því starfi eftir þriggja áratuga langt og farsælt starf hjá fyrirtækinu og lýkur hann endanlega störfum hjá félaginu 30. september. Við kefli Heiðars tók Ingþór Ásgeirsson og í hans stað hefur Trausti Björn Ríkharðsson verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra þjónustusviðs BL. Breytingarnar tóku formlega gildi þann 13. ágúst.
Heiðar Sveinsson hefur starfað í bílgreininni í um 35 ár, fyrst hjá Bílaumboðinu ehf. á árunum 1991 til 1995 sem sölustjóri fyrir vörubíla og rútur frá Renault. Þá réðst hann til Bifreiða- og landbúnaðarvéla sem sölustjóri fyrir atvinnubíla sem jafnframt markaði upphaf rekstrar atvinnubíladeildar B&L. Sjö árum síðar, eða 2002 tók Heiðar við starfi framkvæmdastjóra sölusviðs nýrra og notaðra bíla. Sumarið 2008 tók Heiðar svo við sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins og 2012 við starfi framkvæmdastjóra Hyundai á Íslandi við sameiningu B&L ehf. og Ingvars Helgasonar ehf. sem hlaut nafnið BL ehf. Hyundai hefur á þessum árum sótt mjög fram og er eitt af burðarmerkjum BL og eitt söluhæsta merki félagsins. Heiðar hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Hyundai en lætur endanlega af störfum hjá BL í lok september.
Ingþór Ásgeirsson hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra þjónustusviðs BL frá árinu 2015, en undir sviðið heyra rekstur þriggja bifreiðaverkstæða BL, réttingar- og málningarverkstæðið að Viðarhöfða, innkaupadeild, heildsala og dreifing varahluta, tollamál og standsetning nýrra bíla. Þá heyrir einnig undir sviðið uppbygging og stýring í þjónustumálum sjálfstæðra þjónustuverkstæða BL um allt land. Ingþór hefur setið í þjónusturáði Bílgreinasambandsins og stjórnum fyrirtækja sem tengjast BL-samsteypunni og einnig komið að því að styrkja réttinda- og gæðamál innan bílgreinarinna, svo nokkuð sé nefnt. Áður en Ingþór réðst til BL starfaði hann í tæp 26 ár hjá Pennanum, í upphafi á lager, síðan deildarstjóri, sölustjóri, verslunarstjóri og svo lengst af sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs fyrirtækisins sem rekur fjölda verslana víða um land. Ingþór stýrði m.a. uppsetningu og þróun vefverslunar Pennans og Eymundssonar og stofnaði vildarklúbb Eymundsson, eins vinsælasta vildarklúbbs landsins, og kom að uppbyggingu kaffihúsa í samstarfi við Te&Kaffi í verslunum Eymundssonar víða um land.
Trausti Björn Ríkharðsson á einnig langa sögu að baki hjá BL, en hann réðst upphaflega til BL sem nemi í bifvélavirkjun árið 2003 hjá fyrirtækinu að lokinni útskrift við hin ýmsu störf. Trausti stundaði nám í íþróttafræði við Háskólann í Reykjavík og útskrifaðist með BSc gráðu árið 2012, en að því loknu lá leiðin aftur til fyrri starfa hjá BL uns hann var ráðinn verkstjóri á þjónustuverkstæðinu við Sævarhöfða. Í ársbyrjun 2017 tók Trausti við starfi þjónustustjóra Jaguar Land Rover og á síðasta ári við nýju hlutverki sem þjónustustjóri BL ehf. Nú hefur hann verið ráðinn framkvæmdarstjóri þjónustusviðs félagsins, en undir það heyra starfsstöðvar BL við Sævarhöfða, Viðarhöfða, Hestháls og Kauptún.