2. júní 2026

Tvöföld frumsýning: Subaru Uncharted og MG4 URBAN

Við frumsýnum tvo spennandi rafbíla á laugardaginn!

Nýr Subaru Uncharted sem margir hafa beðið eftir. Fjórhjóladrifinn rafmagnaður jepplingur með drægni allt að 495 km. Háþróuð tækni og rúmgott farþegarými gera hann að traustum ferðafélaga í daglegu lífi og á ferðalögum fjölskyldunnar.

Borgarbílinn MG4 URBAN er nýr rafmagnsbíll frá MG sem kemur á óvart og er á ótrúlegu verði. Tæknileg fullkomnun, fáguð hönnun, lipur í akstri og með drægni allt að 416 km.

Komdu á Sævarhöfða 2 á laugardaginn, milli kl.12-16, skoðaðu og reynsluaktu. Sumarstemning verður á svæðinu, söluráðgjafar í samningsstuði, Lavazza kaffivagninn býður upp á ljúffengt kaffi og léttar veitingar í boði.