Sumargleði BL Sævarhöfða
BL við Sævarhöfða blæs til sumarstemningar fyrir alla fjölskylduna

BL við Sævarhöfða blæs til sumarstemningar fyrir alla fjölskylduna á laugardag milli kl. 12 og 16, þegar meðal annars nýr, fjórhjóladrifinn og alrafmagnaður sportjeppi, Hongqi EHS7 Premium, verður kynntur með viðhöfn og til reiðu fyrir reynsluakstur.
Þessi nýi sportjeppi býður upp á allt að 460 km drægni, er með 619 hestafla rafmótor og 85 kWh rafhlöðu. Hröðun úr kyrrstöðu er einungis 3,9 sek./klst. og dráttargetan eitt og hálft tonn auk þess sem bíllinn er búinn varmadælu sem nýtist vel yfir vetrartímann.
Ríkulegur búnaður fyrir hagstætt verð
Meðal þægindabúnaðar má nefna lyklalaust aðgengi með raddstýringu, tveggja svæða sjálfvirka miðstöð, birtutengdan baksýnisspegil, hita í leðurklæddu stýrinu, loftkæld, upphituð og rafdrifin framsæti með nuddi ásamt hita í aftursætum. Þá er bíllinn búinn vönduðu afþreyingarkerfi með 19 hátölurum sem stjórnað er af 15,5 tommu snertiskjánum, svo einungis fátt eitt sé nefnt enda búnaðarlistinn nokkuð lengri.
Öryggisbúnaður sportjeppans er sömuleiðis vel úti látinn þar sem ekki skortir fjölbreytt aðstoðar- og öryggiskerfi til að hámarka öryggi farþega og aðra vegfarendurí nálægð. Hongqi EHS7 Premium sameinar því í senn hátt notagildi, góðan kraft, mikinn lúxus og nýjustu tækni sem koma sér vel við krefjandi íslenskar aðstæður. Með Orkusjóðsstyrk kostar Hongqi EHS7 Premium 6.990.000 kr.
Allir hinir nýjustu bílarnir á staðnum
Auk frumsýningar á Hongqi EHS7 Premium verða allir hinir nýjustu bílar BL á Sævarhöfðanum einnig til sýnis og reynsluaksturs auk þess sem sérvaldir bílar verða í boði á sérstöku sumarverði í tilefni dagsins.
Fjör fyrir fjölskylduna
Á sumarhátíðinni verður boðið upp á eðalkaffi og léttar veitingar, andlitsmálun fyrir krakkana, lúxusbíómiða fyrir fyrstu 50 í reynsluakstri auk þess sem spennandi ferðavörur og græjur verða til sýnis.