13. maí 2026

Sumarhátíð BL

BL býður á glæsilega Sumarhátíð laugardaginn 16. maí kl. 12:00–16:00 að Sævarhöfða 2 þar sem áherslan verður á rafbíla, frábær tilboð og skemmtilega stemningu fyrir alla fjölskylduna.

Rafbílar eru framtíðin og hjá BL er að finna fjölbreyttasta úrval rafbíla landsins. Við fögnum sumri með 350.000 kr. afslætti af öllum bílum á lager og bjóðum gestum að eiga skemmtilegan dag þar sem boðið verður upp á ís og blöðrur fyrir káta krakka, leiki, ljúffengt Lavazza-kaffi fyrir þá sem eldri eru og léttar veitingar.

Einstök lánakjör eru nú einnig á nýjum, 100% rafdrifnum MGS5 og MGS6. Óverðtryggt bílalán með 3,99% breytilegum vöxtum til fimm ára miðað við 50% innborgun eða uppítöku á notuðum bíl.

Hvort sem fólk er að leita að hagkvæmum fjölskyldubíl, rúmgóðum ferðabíl eða lúxusbíl, þá er rétti bíllinn hjá BL.

Söluráðgjafar BL verða á staðnum, taka vel á móti gestum og svara öllum spurningum um rafbíla, fjármögnun og bílaeign framtíðarinnar.

Skoða Facebook viðburð

*350.000 kr. afsláttur gildir 16.-23. maí. Gildir ekki með öðrum tilboðum. Á við um bíla á lager, ekki sérpantanir.