11. september 2026

Uppfærsla á MyNissan appinu fyrir LEAF 2019-2022

Vegna lokunar 2G og 3G farsímakerfa í Evrópu, hefur MyNissan appið ekki virkað í eldri kynslóðum af Nissan LEAF (Framleiddir: maí 2019 - október 2022).

Lausn í sjónmáli

Ef MyNISSAN appið er að missa tenginguna þegar bíllinn er ekki í gangi, gæti nýr samskiptabúnaður (TCU) verið lausnin. Samskiptabúnaðurinn sér um nettengingu bílsins og gerir honum kleift að senda og taka á móti upplýsingum frá MyNISSAN appinu.

Hafðu samband og við athugum hvort hægt sé að skipta um samskiptabúnað í þínum Nissan LEAF.