17. mars 2026

Sjáumst á Verk og vit

BL tekur þátt í Verk og vit 2026

BL verður á meðal sýnenda á stórsýningunni Verk og vit 2026 sem fram fer dagana 19.–22. mars í Laugardalshöll. Sýningin er einn mikilvægasti vettvangur landsins fyrir fagfólk í bygginga- og mannvirkjageiranum þar sem nýjungar, lausnir og tækni eru kynntar.

Á sýningunni mun BL kynna öflugar lausnir fyrir atvinnulífið með tveimur spennandi ökutækjum: Isuzu D-Max, sem hefur fest sig í sessi sem áreiðanlegur vinnubíll fyrir krefjandi aðstæður, og Renault Master E-Tech, sem er rafknúin lausn fyrir fyrirtæki sem vilja taka skref í átt að vistvænni rekstri.

Samhliða því verður Ísorka á svæðinu með fjölbreyttar hleðslulausnir fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir en með aukinni rafvæðingu í samgöngum skiptir aðgengi að skilvirkum og öruggum hleðslukerfum sífellt meira máli.

Verk og vit er kjörinn vettvangur til að hitta fagfólk, efla tengsl og kynna nýjar lausnir sem styðja við þróun atvinnulífsins.

Við hlökkum til að taka á móti gestum á bás BL og sýna hvernig ökutæki og orkulausnir framtíðarinnar geta stutt við dagleg verkefni fyrirtækja.