13. maí 2025

Vorsýning Land Rover

Það er vor í lofti hjá Land Rover. Við hlökkum til að sjá þig á laugardaginn.

Vorsýning Land Rover verður haldin á laugardaginn frá kl. 12.00 til 16.00.

Í aðalhlutverki er glæsilegur Defender 110 sem hefur gengist undir umfangsmikla AT35 Plús breytingu á verkstæði Arctic Trucks. Með 20 tommu háum og 10 tommu breiðum felgum hækkar bíllinn um 77 mm, sem skilar sér í mýkri og betri akstri, þar sem belgmeiri dekk vinna í takt við fullkomið fjöðrunarkerfi Defender. Breytingin eykur einnig drifgetu bílsins og bætir eiginleika hans til að svífa létt yfir snjó, aur og sand.

Komdu og skoðaðu nýjustu bílana okkar, fjallahjólhýsi frá Tarandus og vígalega breyttan AT35 Plús Defender.

Í boði verða léttar veitingar og gæðakaffi frá Kaffitári.

Við tökum vel á móti þér á Hesthálsi 6-8.