Yfirlýsing frá BL vegna innköllunar Land Rover bifreiða
Vegna umfjöllunar um innköllun Land Rover bifreiða vill BL koma eftirfarandi á framfæri:
Innköllunin nær til samtals sjö bifreiða sem BL flutti inn til landsins. Unnið er að því að hafa samband við eigendur viðkomandi bifreiða og bóka tíma í viðgerð. Áætlað er að búið verði að hringja í alla eigendur fyrir lok dags í dag.
Land Rover hefur ekki gert kröfu um að bifreiðarnar verði teknar úr notkun eða stöðvaðar. Því er öruggt að nota bílana þar til skipt innköllun hefur verið framkvæmd.
Land Rover eigendur geta athugað hvort opin innköllun sé á þeirra bifreið með því að spyrja spjallmennið á landrover.is eða bl.is. Einnig er hægt að sjá hvort innköllun sé á þínum bíl hér.