Persónuverndarstefna
BL ehf.
Persónuverndaryfirlýsing BL ehf.
Öflug persónuvernd er BL – samstæðunni, kt. 630211-0500, Sævarhöfða 2, 110 Reykjavík, kappsmál og leggjum við mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi lög og reglur um persónuvernd, sem nú eru lög nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga („persónuverndarlög“).
Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig móðurfélagið BL ehf. og dótturfélögin BL-Sævarhöfða ehf., BL- Hyundai ehf., BL-JRL ehf. og BL-R&M ehf. (hér eftir „BL“, „samstæðan“ eða „við“), standa að vinnslu persónuupplýsinga um viðskiptavini og aðra einstaklinga í tengslum við starfsemi samstæðunnar.
Hvaða persónuupplýsingum söfnum við og um hverja?
Hjá BL er unnið með persónuupplýsingar í tengslum við rekstur og þjónustu samstæðunnar. Persónuverndaryfirlýsing þessi gildir um vinnslu sem samstæðan hefur með höndum um viðskiptavini, forsvarsmenn og starfsfólk viðskiptavina ef um lögaðila er að ræða, aðra sem hafa samband við samstæðuna eða heimsækja starfsstöðvar eða nota vefsvæði samstæðunnar, verktaka, birgja, samstarfsaðila og starfsumsækjendur um störf (einnig vísað til sem „þú“).
Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga er forsenda þess að BL geti veitt þér eða fyrirtækjum, sem þú starfar hjá eða ert í forsvari fyrir, þá vöru eða þjónustu sem óskað hefur verið eftir. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað eftir eðli viðskiptasambandsins.
BL vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingar um einstaklinga í viðskiptum við samstæðuna:
- Auðkennis- og samskiptaupplýsingar: Nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, símanúmer, netfang, rafræn skilríki og aðrar grunnupplýsingar.
- Samskipta og samningsupplýsingar: Upplýsingar um viðskipti og samskipti við samstæðuna hvort sem þau fara fram bréflega, rafrænt, s.s. tölvupósti eða í gegnum netspjall, vefsíðu, samfélagsmiðlasíður BL, með símtali, munnlega eða á annan hátt og aðrar upplýsingar sem leiða af samningssambandi þínu við samstæðuna um einstaka vörur eða þjónustu.
- Fjárhags- og reikningsupplýsingar: Korta- eða greiðsluupplýsingar og aðrar upplýsingar sem þörf er á svo unnt sé að afhenda þá vöru eða þá þjónustu sem þjónustan eða viðskiptasambandið nær til, s.s. um færslur, greiðslusögu, heimildir, úttektarmörk og afslætti. Í tilviki reikningsviðskipta vinnur samstæðan með upplýsingar um lánshæfi sem fengnar eru frá Creditinfo.
- Upplýsingar sem safnast við beina markaðssetningu: Nafn, netfang, eftir atvikum póstnúmer (í þeim tilvikum er samstæðan sendir einstaklingum tölvupóst sem skráðir eru á tiltekið póstfang). Til viðbótar kann samstæðan að vinna með upplýsingar um farsímanúmer og kennitölu viðskiptavina (í tengslum við bílakynningar og sérkjör) sem veitt hafa samþykki fyrir móttöku smáskilaboða frá samstæðunni.
- Tæknilegar upplýsingar og afleiddar upplýsingar: Upplýsingar um búnað og tæki sem notuð eru til þess að tengjast vefsvæðum samstæðunnar, s.s. IP-tölu, tegund snjalltækis, vefkökur og hvaða aðgerðir þú framkvæmir á vefsvæðunum.
- Upplýsingar sem safnast við rafræna vöktun: Myndbandsupptökur sem safnast við rafræna vöktun með eftirlitsmyndavélum.
- Upplýsingar í tengslum við kröfur laga um aðgerðir gegn peningaþvætti: s.s. upplýsingar um nafn, kennitölu, ríkisfang, heimilisfang, afrit af persónulegum skilríkjum (t.d. rafræn skilríki, vegabréf eða ökuskírteini), upplýsingar um atvinnu eða stöðu, upplýsingar um uppruna fjármuna, stjórnmálaleg tengsl og aðrar upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að framkvæma áreiðanleikakönnun og uppfylla lagaskyldu.
- Aðrar upplýsingar og opinberar upplýsingar: Upplýsingar úr opinberum skráum, s.s. Þjóðskrá Íslands, ökutækjaskrá eða hlutafyrirtækjaskrá.
Framangreind upptalning er ekki tæmandi en samstæðan getur unnið aðrar upplýsingar um þig sem eru nauðsynlegar hverju sinni eftir eðli viðskiptasambandsins eða samskipta þinna við samstæðuna.
BL vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingar um einstaklinga sem koma fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við samstæðuna:
- Auðkennis- og samskiptaupplýsingar: Nafn, kennitala, starfsheiti, símanúmer og vinnunetfang.
- Samskiptaupplýsingar: Upplýsingar um samskipti við samstæðuna hvort sem þau fara fram bréflega, rafrænt, s.s. tölvupósti eða í gegnum netspjall, vefsíðu, samfélagsmiðlasíður BL, smáforrit, með símtali, munnlega eða á annan hátt.
- Upplýsingar sem safnast við rafræna vöktun: myndbandsupptökur sem safnast við rafræna vöktun með eftirlitsmyndavélum.
BL vinnur, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi upplýsingar um aðra einstaklinga, s.s. einstaklinga sem sækja um störf hjá BL ehf. eða styrki.
- Upplýsingar sem safnast í tengslum við starfsumsókn: Tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn, kennitala, netfang, heimilisfang og símanúmer. Upplýsingar úr starfsumsókn, s.s. um reynslu og menntun, eftir atvikum upplýsingar úr ráðningarviðtölum og frá meðmælendum. Ef til þess kemur að BL muni bjóða þér starf kann að vera óskað eftir sakavottorði ásamt annars konar upplýsingum, s.s. afrit af prófskírteini.
- Upplýsingar sem safnast í tengslum við styrkumsókn: Tengiliðaupplýsingar, s.s. nafn og netfang. Upplýsingar um ástæðu styrkumsóknar.
Þá styðst vefsvæði BL við vefkökur, sem eru litlar textaskrár sem komið er fyrir í tölvu eða snjalltæki notanda, sem safna persónuupplýsingum sem nauðsynlegar eru fyrir virkni vefsvæðis samstæðunnar og markaðssetningu.
BL vill benda þér á að þegar þú ferð inn á eða hefur samband við samstæðuna í gegnum samfélagsmiðlasíður þess, t.d. Facebook eða Instagram, þá gæti verið að veitendur samfélagsmiðlaþjónustunnar fái aðgang að upplýsingum og hvetjum við þig til að kynna þér vel persónuverndaryfirlýsingar þeirra.
Í hvaða tilgangi vinnum við persónuupplýsingar um þig?
Öll vinnsla BL á persónuupplýsingum fer fram í skýrum, yfirlýstum og málefnalegum tilgangi. Við vinnum aðallega með persónuupplýsingar þínar í þeim tilgangi að:
- Hafa samband við þig, auðkenna þig, stofna og viðhalda viðskiptasambandi og framkvæma efni samnings milli þín og samstæðunnar og veita þá vöru og þjónustu sem boðið er upp á í starfseminni
- Eiga samskipti við þig, svara fyrirspurnum eða bregðast við ábendingum eða kvörtunum
- Stofna viðskiptareikning eða vegna umsóknar um reikningsviðskipti, þ.m.t. staðfesta fjárhagslegt hæfi þitt, viðhalda áhættu- og fjárstýringu, innheimta og vakta kröfur í vanskilum
- Tryggja öryggis- og eignavörslu og vernda viðskiptavini, starfsfólk og aðra sem eiga erindi við samstæðuna, stuðla að rekjanleika viðskipta og rannsaka, upplýsa eða koma í veg fyrir lögbrot og aðra refsiverða og/eða ámælisverða háttsemi
- Stuðla að net- og upplýsingaöryggi með því að greina, rannsaka og koma í veg fyrir hvers kyns misferli, fjársvik eða netógnir
- Þróa vöru og þjónustuframboð samstæðunnar, bæta virkni vöru eða þjónustu, í þágu gæða- og umbótastarfs
- Stunda markaðs- og kynningarstarf m.a. með því að veita persónubundna þjónustu, senda þér upplýsingar um afslætti, fríðindi og önnur sérkjör eftir atvikum með töku ljósmynda og myndbandsupptökum á kynningum og öðrum viðburðum sem samstæðan kann að halda.
- Reka vefsvæði og bæta notendaupplifun á vefsvæðum samstæðunnar
- Vinna úr umsóknum um starf eða beiðni um styrk
- Uppfylla lagaskyldu sem hvílir á samstæðunni eða starfsfólki þess hverju sinni
Hvaða heimild byggist vinnsla persónuupplýsinga á?
Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga þinna fer fram þar sem hún er nauðsynleg til að gera eða efna samning milli þín og BL eða fullnægja lagaskyldu í samræmi við 2. og 3. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Í ákveðnum tilvikum óskar BL eftir upplýstu samþykki þínu fyrir vinnslu persónuupplýsinga í samræmi við 1. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga. Í þeim tilvikum getur þú hvenær sem er dregið veitt samþykki til baka og er þá þeirri vinnslu sem samþykkið nær til hætt. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á vinnslu persónuupplýsinga fram að afturkölluninni.
Í ákveðnum tilvikum er unnið með persónuupplýsingar vegna þess að BL, þú sjálfur eða þriðji aðili hefur lögmæta hagsmuni af því að upplýsingar séu unnar. Slík vinnsla fer einungis fram ef hagsmunir BL og/eða þriðja aðila af því að vinnslan fari fram vegi þyngra en einkalífshagsmunir þínir að undangengnu sérstöku hagsmunamati þar um. Eftirfarandi vinnsluaðgerðir fara fram á grundvelli lögmætra hagsmuna:
- Vinnsla í þágu markaðs- og markhópagreininga.
- Vinnsla í þágu net- og upplýsingaöryggis og til að tryggja öryggis- og eignavörslu, m.a. með eftirlitsmyndavélum.
- Vinnsla í þágu markaðssetningar, s.s. þegar við sendum þér upplýsingar um þjónustu, afslætti og önnur sérkjör á rafrænan hátt.
- Vinnsla í þágu þróunar og prófun á nýjum vörum, þjónustugreiningar og tölfræðigreiningar.
- Vinnsla í þágu þjónustu við viðskiptavini og aðra í gegnum vefspjall.
- Vinnsla í þágu styrkumsókna félagasamtaka og íþróttafélaga
Hvaðan fær BL persónuupplýsingar?
BL safnar fyrst og fremst persónuupplýsingum um þig frá þér sjálfum. Þú lætur í ákveðnum tilvikum jafnframt af hendi persónuupplýsingar með óbeinum hætti, s.s. ef þegar þú heimsækir eða notar vefsvæði BL þar sem vefkökur eru notaðar og aðgerðarskráning fer fram.
Neitir þú að afhenda BL persónuupplýsingar eða andmælir vinnslu þeirra getur það haft áhrif á það hvernig samstæðan getur veitt þér þjónustu.
Í öðrum tilfellum kunna persónuupplýsingar þínar að berast okkur frá þriðja aðila, s.s. lögaðila sem er í viðskiptum við samstæðuna, samstarfs- og vinnsluaðilum eða opinberum aðilum, s.s. Þjóðskrá Íslands, Samgöngustofu (ökutækjaskrá) eða Creditinfo, þegar fyrrnefndir aðilar hafa heimild til miðlunar slíkra upplýsinga. Áður en persónuupplýsinga er aflað frá þriðja aðila leitast samstæðan eftir að upplýsa þig um slíkt.
Hvenær miðlar BL persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila og af hverju?
Það er mögulegt að persónuupplýsingar um þig verði afhentar til þriðja aðila ef slíkt er skylt samkvæmt lögum, s.s. til stjórnvalda, löggæslu- og skattyfirvalda, dómstóla, til innheimtuaðila eða fjárhagsupplýsingastofu í tilefni af skráningu í vanskilaskrá. Eins gætu persónuupplýsingar þínar verið afhentar til þriðja aðila, svo sem í tengslum við samningssamband viðkomandi við samstæðuna eða vegna þjónustu til þín eða fyrirtækis sem þú ert tengiliður fyrir. Sem dæmi kann upplýsingum að vera miðlað til fyrirtækja sem annast greiðslumiðlun (t.d. banka eða kortafyrirtækis), rekstrar- og hýsingaraðila upplýsingakerfa eða ráðningarfyrirtækis vegna starfsumsókna. Í vissum tilvikum geta slíkir aðilar talist vera vinnsluaðilar og gerir BL þá vinnslusamning við viðkomandi aðila, þar sem trúnaður og öryggi þeirra persónuupplýsinga sem unnið er með er tryggt, í samræmi við kröfur persónuverndarlaga.
Framangreindir þriðju aðilar kunna að vera staðsettir utan Íslands. BL miðlar þó ekki persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé í samræmi við ákvæði persónuverndarlaga, s.s. á grundvelli staðlaðra samningsskilmála framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eða auglýsingar Persónuverndar um ríki sem veita persónuupplýsingum fullnægjandi vernd.
Með notkun á samfélagsmiðlasíðum BL, s.s. Facebook og Instagram, safnast tölfræðiupplýsingar um heimsóknir á síðuna sem samstæðan vinnur ásamt viðkomandi samfélagsmiðlaþjónustu í tengslum við þá vinnslu og koma aðilar fram sem svokallaðir sameiginlegir ábyrgðaraðilar í tengslum við þá vinnslu. Við hvetjum þig því til að kynna þér vel persónuverndaryfirlýsingar þeirra.
Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?
BL varðveitir aðeins persónuupplýsingar eins lengi og þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar, í samræmi við ákvæði laga og varðveislustefnu samstæðunnar. Almennt eru persónuupplýsingar varðveittar á meðan á viðskiptasambandi stendur, eins lengi og lög kveða á um eða lögmætir hagsmunir samstæðunnar krefjast.
Bókhaldsgögn, þ.m.t. afrit af reikningum, eru sem dæmi varðveitt að lágmarki í sjö ár í samræmi við bókhaldslög nr. 145/1995. Efni sem safnast við rafræna vöktun eða við hljóðupptökur er eytt að 90 dögum liðnum, nema lög kveði á um annað eða lögmætir hagsmunir krefji.
Persónuupplýsingar umsækjenda eru geymdar í umsóknarkerfinu Alfreð á meðan ráðningarferli stendur yfir og svo lengi sem umsækjendi heldur umsókninni virkri á sínum aðgangi. BL sækir ekki gögnin niður í eigin kerfi, heldur hefur aðeins aðgang að þeim í gegnum Alfreð. Umsækjendur geta sjálfir eytt umsóknum sínum og tengdum gögnum samkvæmt stillingum í Alfreð.
Öryggi persónuupplýsinga þinna
BL leggur ríka áherslu á að tryggja öryggi persónuupplýsinga og hefur innleitt skipulagslegar og tæknilegar öryggisráðstafanir í þeim tilgangi. Dæmi um slíkar ráðstafanir eru aðgangsstýringar og aðgerðarskráning í upplýsingakerfum og hugbúnaði, notkun eldveggja, örugg innskráning svo dæmi séu tekin auk þess sem starfsfólk fær reglulega þjálfun og fræðslu um persónuvernd og upplýsingaöryggi.
BL leggur áherslu á að takmarka skuli aðgang að persónuupplýsingum við þá starfsmenn sem nauðsynlega þurfa slíkan aðgang starfa sinna vegna. Starfsfólk BL er jafnframt skylt til að gæta trúnaðar og tryggja öryggi persónuupplýsinga á meðan og eftir að það lætur af störfum fyrir BL.
BL hefur skjalfest verklag til að tryggja lögmæta meðferð og öryggi persónuupplýsinga þ.m.t. um skilvirk viðbrögð við öryggisbrestum eða öryggisatvikum sem og tilkynningarskyldu. Í slíkum tilvikum er Persónuvernd, viðeigandi eftirlitsstofnunum og eftir atvikum einstaklingum tilkynnt um öryggisbrest í samræmi við persónuverndarlög.
Sjálfvirk ákvarðanataka
Ef til þess kemur að BL útbúi persónusnið um þig s.s. til að meta eða spá fyrir um ákveðna þætti er varða hagi þína, hegðun eða þjónustunotkun mun samstæðan ávallt tryggja að slík vinnsla sé sanngjörn og gagnsæ gagnvart þér og byggi á viðeigandi öryggisráðstöfunum. Sjálfvirk ákvarðanataka og eftir atvikum gerð persónusniðs sem hefur bein áhrif á hagsmuni þína fer einungis fram á grundvelli samþykkis þíns, ef hún er nauðsynleg til að gera eða efna samning milli þín og samstæðunnar eða ef lög heimila.
Markpóstar
BL sendir reglulega út fréttabréf með fréttum af starfseminni sem og boð á viðburði á vegum samstæðunnar á viðskiptavini og aðra þá sem sérstaklega hafa skráð sig á tölvupóstlista sasmtæðunnar. Vinnsla tölvupóstfanga í þeim tilgangi er byggð á lögmætum hagsmunum BL af markaðssetningu og því að tryggja viðskiptavinum fyrirmyndar þjónustu.
Ef þú óskar eftir því að vera ekki á tölvupóstlista BL getur þú ávallt afskráð þig með því að smella afskráningarhlekk sem fylgir sérhverjum tölvupósti. Þá minnir samstæðan jafnframt tengiliði tölvupósta reglulega á rétt þeirra til afskráningar af tölvupóstlistanum.
Rafræn vöktun með öryggismyndavélum
Rafræn vöktun fer fram með öryggismyndavélum á starfsstöðvum BL og við önnur mannvirki samstæðunnar í öryggis- og eignavörsluskyni. Þeir einstaklingar sem heimsækja vöktuð mannvirki eða svæði kunna því að vera teknir upp á mynd. Vinnsla á þeim upplýsingum sem safnast með rafrænni vöktun byggir á lögmætum hagsmunum BL, sbr. 6. tl. 1. mgr. 9. gr. persónuverndarlaga.
Persónuupplýsingar sem verða til við notkun öryggismyndavéla verða einungis notaðar ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdaverk eða slys. Þær má ekki afrita eða afhenda öðrum aðila, nema á grundvelli lagaheimildar, samþykkis skráðra aðila eða samkvæmt ákvörðun Persónuverndar hverju sinni. Persónugreinanlegar myndupptökur eru því almennt ekki afhentar öðrum en lögreglu og þá ef um slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða. Þá kann myndupptökum jafnframt að vera miðlað í þeim tilgangi að BL geti stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur. Í þeim tilvikum sem unnið er með myndefni í þeim tilgangi er, eins og nauðsyn krefur, heimilt að veita stjórnendum, lögmönnum og tryggingarfyrirtæki BL og gagnaðila, auk dómstóla, aðgang að myndefninu.
Myndefni sem verður til við notkun öryggismyndavéla er varðveitt í allt að 90 daga nema nauðsyn krefji til að varðveita það lengur til að geta stofnað, haft uppi og eftir atvikum varið réttarkröfur, einkum í dómsmáli, að því gefnu að lög heimili eða dómsúrskurður eða fyrirmæli þar til bærs stjórnvalds liggi fyrir.
Strangar aðgangstakmarkanir gilda um aðgang að efni sem safnast við rafræna vöktun öryggismyndavéla og það er eingöngu skoðað ef upp kemur ágreiningur milli BL og viðskiptavinar, grunur um refsiverða háttsemi eða í þágu innra eftirlits.
Réttindi þín
Persónuverndarlög veita öllum einstaklingum, þ.m.t. viðskiptavinum BL, og öðrum sem samstæðan kann að vinna persónuupplýsingar um, ákveðin réttindi. Þú átt almennt rétt á að:
- Fá staðfestingu á því hvort við vinnum persónuupplýsingar um þig og afrit af persónuupplýsingum þínum. Þá áttu jafnframt rétt á ákveðnum lágmarksupplýsingum um tilhögun vinnslu sem m.a. eru veittar í yfirlýsingu þessari.
- Fá persónuupplýsingar þínar fluttar til annars ábyrgðaraðila ef þú hefur afhent BL persónuupplýsingar á rafrænu formi og slíkur flutningur er tæknilega mögulegur. Einungis er um að ræða persónuupplýsingar sem afhentar hafa verið á grundvelli samþykkis þíns eða vegna framkvæmdar samnings og eru unnar með sjálfvirkum hætti.
- Óska eftir því að rangar eða tilteknar persónuupplýsingar um þig verði leiðréttar ef þær eru rangar eða óáreiðanlegar.
- Óska eftir að persónuupplýsingum um þig sé eytt í afmörkuðum tilvikum ef skilyrði persónuverndarlaga um eyðingu eiga við.
- Andmæla vinnslu persónuupplýsinga sem byggir á lögmætum hagsmunum BL eða fer fram í þágu beinnar markaðssetningar.
- Fara fram á að vinnsla persónuupplýsinga þinna sé takmörkuð tímabundið vegna sérstakra aðstæðna hjá þér.
- Að sæta ekki sjálfvirkri ákvarðanatöku nema hún fari fram samkvæmt skilyrðum persónuverndarlaga og þegar hún fer fram átt þú rétt á mannlegri íhlutun og útskýringu á því hvernig sjálfvirk ákvarðanataka er fengin.
- Afturkalla samþykki þitt um að BL megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.
- Leggja fram kvörtun hjá eftirlitsyfirvaldi sjáir þú ástæðu til þess.
Réttindi þín eru ekki fortakslaus og lög eða reglugerðir kunna að heimila eða skylda BL til að hafna beiðni þinni um að nýta þér umrædd réttindi. Réttur þinn til að andmæla vinnslu persónuupplýsinga þinna vegna beinnar markaðssetningar er þó ávallt fortakslaus.
Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn [email protected]. Við munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.
Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.
Frekari upplýsingar
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við persónuverndarfulltrúa BL, í gegnum netfangið [email protected]
Endurskoðun og uppfærslur
BL áskilur sér rétt til að endurskoða persónuverndaryfirlýsingu þessa reglulega og uppfæra eftir þörfum. Síðast var yfirlýsingin uppfærð þann 25.3.2026.
Persónuverndarstefna fyrir starfsfólk BL ehf
BL leggur áherslu á að hafa alltaf á að skipa hæfum starfsmönnum sem vinna saman sem ein heild við að ná settum markmiðum.
Mannauðurinn samanstendur af starfsfólki BL sem vinnur að því sameiginlega markmið að veita framúrskarandi þjónustu, sýna frumkvæði í starfi og fagleg vinnubrögð sem standast alla gæðastaðla þeirra merkja sem BL selur. BL keppist að því að veita gott starfsumhverfi þar sem gagnkvæm virðing og starfsánægja er í fyrirrúmi og að vinnustaðurinn sé eftirsóknarverður starfsvettvangur þar sem starfsfólki líður vel og gegnir starfi sínu af stolti, ánægju og trúmennsku. BL leggur áherslu á að hafa alltaf á að skipa hæfu starfsfólki sem er áhugasamt og vinnur saman sem ein heild við að ná settum markmiðum.
BL leggur áherslu á:
- Að laða að og halda í hæft starfsfólk
- Ríka þjónustulund og áreiðanleika
- Góða framkomu og virðingu fyrir samstarfsmönnum og viðskiptavinum BL
- Starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heiðarleika og virðingu
Starfsánægju:
- Að hvetja starfsmenn til góðra verka, frumkvæðis og sjálfstæðra vinnubragða
- Samvinnu, starfsgleði og góðan starfsanda
Faglega stjórnun:
- Að starfsfólk þekki stefnu og gildi fyrirtækisins
- Að hlúa vel að þjálfun, fræðslu og starfsfærni
- Að einelti og kynferðisleg áreitni sé ekki liðin
- Að skapa jöfn tækifæri til stöðuveitinga og launa og að einstaklingum sé ekki mismunað á grundvelli kynferðis, aldurs, trúar, þjóðernis, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar, stjórnmálaskoðanar eða annarra ómálefnalegra þátta