Kynntu þér
vinnustaðanám

Við hjá BL höfum skipulagt starfskynningar sem gera ungu fólki kleift að kynna sér störf í bílgreininni í hinum ýmsu þjónustudeildum fyrirtækisins. Þeir einstaklingar sem eru áhugasamir og skara fram úr eiga kost á:
    Örugg sumarvinna
    í líflegu starfsumhverfi með aðgang að mötuneyti og öðrum þeim kostum sem starfsmenn BL hafa aðgang að.
    Allur beinn námskostnaður greiddur
    BL greiðir allan beinan námskostnað viðkomandi nemanda svo sem bækur, ritföng, skólatösku og annað sem á beinan hátt tengist náminu yfir allan námstímann.
    Aðstoð frá mentor
    BL úthlutar nemandanum „starfsfóstra“ sem sinnir reglulegum samskiptum við nemanda, foreldra nemanda og kennara eftir atvikum. Starfsfóstri tengir nemanda inn til BL þegar kemur að sumarvinnu auk þess sem hann lætur sig varða námsframvindu viðkomandi nemanda.
    Námssamningur
    BL býður þeim nemendum sem standast kröfur BL námssamning vegna vinnustaðanáms sem er nauðsynlegur fyrir þá sem taka sveinspróf.

    Spennandi nám og skemmtilegt starf

    Það hefur alltaf veríð skemmtilegt að vinna við bíla. Ad skilja hvernig einstakir hlutar þeirra vinna saman að því að skíla orku út (hjólin og láta þau snúast með sem áhrifaríkustum hætti.

    Bíliðngreinin er á spennandi tímamótum þar sem ný tækni og nýir orkugjafar bætast við og breyta grundvallarbyggingu farartækjanna sem keyra samfélagið áfram að stórum hluta.

    Sæktu um starfsnám hjá BL

    Málningar- og Réttingaverkstæði

    Þeir sem hyggja á nám í bílamálun eða bifreiðasmíði (réttingum) hafa alla sömu möguleika til símenntunar og þeir sem vinna við almennar viðgerðir. Nemum eru tryggð tækifæri til að öðlast færni í öllum þáttum iðnnámsins eins og iðngreinaskólinn (Borgarholtsskóli) gerir ráð fyrir samkvæmt námsskrá.

    Nýjasta nýtt! Ál og koltrefjar

    Starfsmenn í bílamálun og bifreiðasmíði hafa ekki farið varhluta af breytingum í bílgreininni. Ný efni og aðferðir eru dagleg viðfangsefni. Sem dæmi má nefna að BMW hefur tileinkað sér notkun koltrefja í sína nýjustu bíla og Land Rover er leiðandi framleiðandi í notkun áls í bíla sína og var t.a.m. fyrsti bílaframleiðandi heims með burðarvirki úr áli líkt og tíðkast hefur við smíði flugvéla. Starfsmenn þessara deilda fá því tækifæri til að takast á við það allra nýjasta.

    Rafbílar og
    framtíðarstörf

    Rafbílar eru framtíðin. Störf sem tengjast rafbílum eru því sannarlega framtíðarstörf. BL hefur haslað sér völl sem eitt stærsta og öflugasta rafbílaumboð landsins og var fyrst bílaumboða til að koma sér upp fullkomnu verkstæði fyrir rafbíla.

    Vertu í stuði þegar tækifærið kemur

    Þrátt fyrir að rafbílar séu í dag aðeins lítill hluti markaðarins er ljóst að rafbílatækninni mun fleygja hratt fram og sala þeirra aukast til muna áður en langt um líður. Ef þig langar að taka þátt í að móta framtíðina og vera þátttakandi í bylgju nýjunga í bílgreininni skaltu hoppa um borð og vera í stuði þegar tækifærin gefast.

    Viltu vita meira?

    Nafn*
    Netfang*
    Fyrirspurn*